Hafnarstjórn Grindavíkur - 458. fundur
- 14.05.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 458
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Pétur Már Benediktssonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Gunnar Ari Harðarsonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Ámundínus Örn Öfjörðvaramaður
1. Umsókn um lóð: Hólmasund 1
Um er að ræða umsókn um lóð fyrir vinnslu á fiskafurðum.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við umsóknina þar sem starfsemin flokkast sem hafsækin starfsemi. Páll Pálsson vék af fundi á meðan afgreiðsla málsins fór fram.
2. Umsókn um lóð: Hólmasund 1
Um er að ræða umsókn um lóð fyrir geymsluhúsnæði
Hafnastjórn bendir á að hafsækin starfsemi hefur forgang á úthlutun lóða innan skipulags hafnasvæðis. Páll Pálsson vék af fundi á meðan afgreiðsla málsins fór fram.
3. Grindavíkurhöfn, dýpkun við Miðgarð: Tilboð, verksamningur og framvinda
Tilboð í verkið; Grindavík, dýpkun 2018$line$Engin villa fannst í tilboðum og mælir því Vegagerðin með því að tilboði Björgunar ehf verði tekið.
Hafnastjórn leggur til að samið verði við Björgun ehf.
4. Grindavíkurhöfn: Öryggismál
Hver er staða verkefnisins við gatnamót Ránargötu og Seljabótar og hvenær má búast við að farið verði í framkvæmdir?
Hafnastjórn leggur til að umbætur á gatnamótum Ránargötu og Seljabótar verði í samræmi við skissu verkfræðistofunnar Eflu dagsetta 14. maí 2018. Leggur hafnarstjórn áherlsu á að farið verði í verkið sem allra fyrst.
5. Miðgarður, uppbygging: Verksamningur og framvinda
Verktaki bendir á að grunnt sé við austurenda nýja þilsins eða 2,8 m og ráðleggur að dýpka þar áður en þilið verði rekið niður. Einnig þarf að ákveða hvert það efni sem ekki fer í fyllingu innan stálþils eigi að fara.
Hafnastjórn telur að ekki sé þörf á því að dýpka við austurenda nýja þilsins, þar sem innan fárra ára þarf að huga því að klára endurnýja stálþilið austan megin með tilheyrandi dýpkunum.
Hafnastjórn veitir Hagtak ehf heimild til að losa dýpkunarefni sem ekki verður nýtt í fyllingu innan stálþilsins í landfyllingu við Eyjabakka, hafnasjóði að kostnaðarlausu, í stað þess að sigla með efnið á þann losunarstað sem fram kemur í útboðsgögnum. Hafnastjóra er falið að sækja um starfsleyfi til byggingaryfirvalda fyrir landfyllingunni og að kanna hver kostnaður er af því að færa grjótvörn af Eyjabakka ef að landfyllingu verður.6. Grindavíkurhöfn: Ósk um aðstöðuleyfi fyrir farþegabát
Hafnastjórn veitir Útvör ehf stöðuleyfi fyrir 20 feta gámi á smábátasvæði í samráði við hafnastjóra. Umsóknaraðili er bent á að óska eftir umsögn eldvarnareftirlitsins.
7. Fundargerðir: Hafnasamband Íslands 2018
Fundargerðir 402. og 403. fundar til kynningar
Lagt fram