Hafnarstjórn Grindavíkur - 457. fundur
- 12.04.2018
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 457
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Pétur Már Benediktssonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Gunnar Ari Harðarsonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Grindavíkurhöfn: Deiliskipulag, Eyjabakki og smábátahöfn
Fyrsta skref er að velja afmörkun. Ég er hrifin af því að taka þetta inn í Eyjabakkaskipulagið af þeirri praktísku ástæðu að ég þarf að gera breytingar á því. Einnig er hluti af núverandi skipulagssvæði hafnarsvæði
Hafnarstjórn leggur til að deiliskipulag á hafnarsvæði og iðnaðarsvæði verið unnið í sitthvoru lagi.
2. Grindavíkurhöfn: Dýpkun við Miðgarð
Útboðsgögn Siglingasviðs vegagerðarinnar fyrir dýpkun 2018
Hafnarstjórn samþykkir að siglingasvið Vegagerðarinnar auglýsi eftir tilboðum í dýpkunina. Áætluð verklok verði 31. desember 2018
3. Miðgarður 2: fyrirspurn um stækkun
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við stækkun á veitingarými hússins, en bendir jafnframt á að húsið er staðsett á athafnasvæði hafnarinnar og því fylgja talsverð umsvif framan við húsið. Einnig þarf að hafa í huga að bílastæði við húsið verði innan lóðar.
4. Miðgarður: Þekja
Drög af þekju og lögnum fyrir Miðgarð
Hafnarstjórn leggur til að innsiglingaljós verði fært framar sem næst upprunalegum stað. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna málið áfram í samvinnu við siglingasvið Vegagerðarinnar. Einnig að kanna kostnað við afgreiðslu á heitu vatni til skipa og sömuleiðis kostnað við snjóbræðslu í þekju.
5. Grindavíkurhöfn: Öryggi og þjónusta
Lagt fram til umfjöllunar
Málið lagt fram, umræða um öryggismál og þjónustu.