Hafnarstjórn Grindavíkur - 430. fundur
- 13.10.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 430
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Pétur Már Benediktssonaðalmaður
- Gunnar Ari Harðarsonvaramaður
- Páll Þorbjörnssonvaramaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Andrés Óskarsson1. varamaður
1. Deiliskipulag miðbæjar - Ránargata og Hafnargata
Ég er búinn að boða manneskju frá Eflu til að mæta og kynna þetta fyrir ykkur. Endilega skoðið skipulagið vel og komið athugasemdum til hennar.
Eva Dís Þórðardóttir og Bryndís Friðriksdóttir frá verkfræðistofunni Eflu komu á fundinn og kynntu deiliskipulag miðbæjar og hafnarsvæðis fyrir hafnarstjórnarmönnum. Í tillögum þeirra kemur fram að bílastæði við hafnarhúsið verði betur skipulögð, hafnaraðstaða við Kvíabryggju verður löguð. Hafnarstjórn leggur áherslu á að aksturleið að og frá hafnarvog verði haldið greiðri. Einnig ítrekar hafnarstjórn að innakstur að Miðgarði frá Ránargötu verði lokuð. Þannig að leiðin frá Miðgarði og upp Ránargötu verði einstefna. Hafnarstjórn leggur áherlsu á að halda þeim möguleika opnum að hægt verði að leggja veg frá Suðurgarði til vesturs, sjávarmegin við vinnusluhús Íslandsbleikju.
2. Drög að samningi um afnot af AIS upplýsingum
Drög af samningi um afnot af AIS upplýsingum frá Neyðarlínunni
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að ganga frá samningi við Neyðarlínuna.
3. Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2015-2018
Hafnarstjóri fór yfir fjárhagsáætlun fyrir árið 2015
4. Gjaldskrá Grindavíkurhafnar árið 2015
Hafnarstjórn leggur til að gjaldskrá verði haldið óbreyttri fyrir árið 2015. Verði breytingar á gjöldum frá birgjum hafnarinnar þá geti það leitt til breytingar á gjaldskrá hafnarinnar.
5. Myndavélakerfi fyrir Höfn
Hafnarstjóri geri grein fyrir stöðu mála
Hafnarstjóri fór yfir stöðu mála.
6. Fjögurra ára samgönguáætlun 2015-2018 - Umsóknir vegna verkefna í hafnargerð og sjóvörnum.
Hafnarstjóra og Formanni Hafnarstjórnar falið að gera viðeigandi ráðstafanir.
7. Sjávarútvegssýning 2014
Hafnarstjórn lýsir yfir ánægju með frábært samstarf við þjónustufyrirtæki í Grindavík.
8. Stefnumótun Grindavíkurhafnar
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að hefja undirbúning að markaðssetningu Grindavíkurhafnar í samræmi við stefnumótun 2012
9. Umsókn um lóð Hólmasund 1
Lóðin er á skilgreindu hafnarsvæði skv. aðalskipulagi
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir.