Hafnarstjórn Grindavíkur - 420. fundur
- 12.08.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 420
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Hilmar E Helgasonvaraformaður
- Pétur Már Benediktssonaðalmaður
- Bergþóra Gísladóttiraðalmaður
- Eiríkur Óli Dagbjartssonaðalmaður
- Andrés Óskarssonvaramaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Yfirlögn á Nesveg og Bakkalág að smábátahöfn.
Hafnarstjóri og Byggingarfulltrúi óska eftir viðauka í fjárhagsáætlun 2013 til að ljúka við seinni yfirlögn á bundnu slitlagi á annarsvegar Nesveg og hinsvegar vegtengingu og bílastæði við smábátahöfn. Verkið var á áætlun 2012 en ekki tókst að ljúka verkinu á árinu vegna óhagstæðra veðurskilyrða. Áætlaður kostnaður við verkið er 5.000.000 kr og verður hlutur hafnarinnar þá 2.500.000 kr og hlutur bæjarsjóðs 2.500.000 kr
Hafnarstjórn óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun Grindavíkurhafnar 2013 samkvæmt kostnaðaráætlun.
2. Þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar 2013
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að fá inn dagskrárlið á hafnaþingi 20 september um fyrirkomulag farþegagjalda fyrir hvalaskoðunarskip. Hafnir sem ekki fullnýta tekjustofna sína geta átt það á hættu að fá ekki styrki vegna viðhalds hafnamannvirkja.