Hafnarstjórn Grindavíkur - 452. fundur
- 11.09.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 452
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Pétur Már Benediktssonaðalmaður
- Gunnar Ari Harðarsonaðalmaður
- Magnús Andri Hjaltasonvaramaður
- Andrés Óskarssonvaramaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Ægisgata 3: Breytt notkun á matshluta
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða notkun á húsnæðinu við Ægisgötu 3.
2. Bjarni Þór: Ósk um Þurrleigu
Skipaþjónusta Íslands óskar eftir leigu og samstarfi rekstri hafnsögubáts
Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur hafnarstjóra að ganga frá samningum um leigu á Bjarna Þór.
3. Grindavíkurhöfn: Öryggismál
Tillögur um öryggismál frá samráðshópi um öryggismál á hafnarsvæði
Tillögum frá samráðshópi vel tekið, hafnastjóra falið að vinna málið áfram með hugmyndir og útfærslur hafnarstjórnar og leggja fyrir næsta hafnarstjórnarfund.
4. Miðgarður, uppbygging: Verksamningur og framvinda
Verktaki leggur til að sprengt verði í stað þess að fleyga fyrir þili við vesturgafl
Hafnarstjórn felur formanni hafnarstjórnar og hafnarstjóra að óska eftir fundi með forstöðumanni Siglingasviðs Vegagerðarinnar til að fara yfir stöðu mála.
5. Fundargerðir: Hafnasamband Íslands 2017
Fundargerðir 395. og 396. fundar til kynningar
Lagt fram