Hafnarstjórn Grindavíkur - 429. fundur
- 08.09.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 429
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Pétur Már Benediktssonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Gunnar Ari Harðarsonvaramaður
- Páll Þorbjörnssonvaramaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Tilboð; Flotbryggja frá Króla
Lagt fram tilboð í nýja flotbryggju
Kristján f.h. Króla ehf ítrekar tilboð í 25m steinbryggju að upphæð 10 miljónir króna niðurkomið. Hafnarstjóra og Formanni hafnarstjórnar er falið að semja við Króla.
2. Erindi vegna viðlegupláss
Ósk um úrbætur á viðleguplássi vegna nýju báta Einhamars
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að finna leiðir til að stærri plastbátar geti lagst við Eyjabakka.
3. Fjarviktunarverkefni
Fjarviktunarverkefni lagt fram til kynningar. Taka þarf afstöðu til áframhalds á verkefninu
Hafnarstjórn leggur til að haldið verði áfram með verkefnið.
4. Grænu innsiglingarljósin
Ástand grænu innsiglingaljósanna
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að setja upp ný ljós í samvinnu við Vegagerðina
5. Myndavélakerfi fyrir Höfn
Staða verkefnis kynnt
Lagt fram til kynningar
6. Ósk um aukinn starfskraft fyrir höfn
Taka þarf afstöðu til óskar Hafnarstjóra um viðbótar 30% stöðugildi.
Hafnarstjórn felur formanni að ljúka málinu í samræmi við endumenntunarstefnu Grindavíkurbæjar
7. Ósk um flutning á bátadælu
Beiðni um flutning á eldsneytisdælu
Samþykkt
8. Rauða baujan
Óskað er eftir afstöðu hafnarstjórnar um hvort rauða innsiglingarbaujan verði sett út aftur
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að skoða málið áfram
9. Sex mánaðar uppgjör
Lagt fram 6 mánaða rekstraryfirlit og landaður afli sama tímabils.
Lagt fram
10. Siðareglur bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar
Lagt fram til umræðu og kynningar
Lagt fram