Hafnarstjórn Grindavíkur - 461. fundur
- 08.10.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:30
- Seljabót 2
- Fundur nr. 461
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Gunnar Ari Harðarsonaðalmaður
- Páll Gíslasonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Eyjabakki: Deiliskipulag
Brynja skipulagsráðgjafi kemur inn á fundinn. Skipulags- og matslýsing er undanfari deiliskipulags
Brynja Ingólfsdóttir frá Eflu kom og kynnti fyrir hafnarstjórn skipulags- og matslýsingu vegna deiliskipulagsvinnu við Eyjabakka. Hafnarstjórn leggur til breytingu á orðalagi vegna innrihafnagarða og smábátahafnar.
2. Miðgarður, uppbygging: Verksamningur og framvinda
Farið yfir verkið. Lokamæling á eftir að fara fram. Að öðru leyti telst verkinu lokið.
3. Grindavíkurhöfn, dýpkun 2018 við Miðgarð: Tilboð, verksamningur og framvinda
Verkið hefur gengið að óskum. Hönnunarvinna er í gangi vegna viðbótardýkunar á svæði sem Siglingasviðið mælir með að verði dýpkað. Von er á hönnunargögnum á mánudag,
Fyrir liggur að, samkvæmt reikningum Siglingasviðs Vegagerðarinnar, magn dýpkunarefna er u.þ.b. 10% minna en gert er ráð fyrir í útboðsgögnum. Vegagerðin mælir með því að Björgun dýpki grunnt svæði sem liggur u.þ.b. 70m. suður af Miðgarði til þess að auka snúningssvæði skipa við bryggjuna þar sem þrengst er að athafna sig.
4. Vinna við verkfundi - Grindavíkurhöfn
sjá minnisblað
Hafnarstjórn leggur til að sá sem situr í verkefnanefnd með hafnarstjóra fái greitt fyrir fundarsetu á verkfundum vegna framkvæmda við Miðgarð.
5. Hafnasamband Íslands: Samstarfslýsing hafna og Fiskistofu
Bréf frá hafnasambandi Íslands um samstarf hafna og Fiskistofu.
Bréfið lagt fram