Hafnarstjórn Grindavíkur - 460. fundur
- 10.09.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:45
- Seljabót 2
- Fundur nr. 460
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Gunnar Ari Harðarsonaðalmaður
- Bergþóra Gísladóttiraðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Pétur Hafsteinn Pálssonvaramaður
1. Miðgarður, uppbygging: Verksamningur og framvinda
Farið yfir stöðu verkefnis
Farið yfir stöðu verkefnisins.Farið verður í dýptarmælingar til að ganga úr skugga um að dýpið sé í 8 metra meðfram þilinu.
2. Fundargerðir: Hafnasamband Íslands 2018
Fundargerð 405. fundar til kynningar
Fundargerð lögð fram til kynningar, ákveðið að fjölmenna á hafnasambandsþingið 25.-26. október nk.
Fulltrúar hafnarinnar með kjörgengi verða Ómar Ólafsson, Páll Pálsson, Gunnar Harðason og Sigurður Kristmundsson. Aðrir þingfulltrúar verða Bergþóra Gísladóttir og Páll Gíslason.3. Grindavíkurhöfn: Áætlun um móttöku úrgangs og farmleifa 2018
Farið yfir skýrslu hafnastjóra sem send var til samþykktar til Umhverisstofnunarinnar
Farið yfir skýrslu hafnarstjóra sem send var til samþykktar hjá Umhverfisstofnun.
4. Grindavíkurhöfn: Fjárhagsáætlun 2019-2022
Ýmis talnagögn um rekstur hafnarinnar lögð fram
Farið yfir talnagögn hafnastjóra, honum falið að gera tillögu að gjaldskrá og framkvæmdaáætlun fyrir árið 2019.
5. Grindavíkurhöfn: Deiliskipulag, Eyjabakki og smábátahöfn
Matsskýrla frá Eflu lögð fram
Matsskýrla frá Eflu lögð fram.
6. Grindavíkurhöfn, dýpkun 2018 við Miðgarð: Tilboð, verksamningur og framvinda
Farið yfir stöðu verkefnisins
Farið yfir stöðu verkefnisins.
7. Grindavíkurhöfn: Dýpkun í smábátahöfn 2018
Umræður um dýpkun í smábátahöfn
Ákveðið að fá Björgun og Hagtak til að bjóða í að fjarlægja u.þ.b. 1000 rúmmetra af klapparefni við smábátahöfnina þar sem áður var grjótgarður fyrir afgreiðslu á eldsneyti fyrir viðskiptavini Skeljungs.
8. Miðgarður: Þekja, lagnir og raforkuvirki
Farið yfir stöðu verkefnisins.
Farið yfir stöðu verkefnisins.