Hafnarstjórn Grindavíkur - 455. fundur
- 08.01.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 455
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Pétur Már Benediktssonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Gunnar Ari Harðarsonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
1. Grindavíkurhöfn: Starfsáætlun 2018
Farið yfir ýmsa þætti starfsáætlunar
Starfsáætlun lögð fram og rædd. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að leita tilboða í nýjan dekkjagatara.
2. Grindavíkurhöfn: Stefnumótunaráætlun 2012
Farið yfir stefnumótunaráætlunina
Hafnarstjórn felur formanni hafnarstjórnar og hafnarstjóra að kalla saman starfshóp um nýja stefnumótunaráætlun.
3. Miðgarður, uppbygging: Verksamningur og framvinda
Staða verkefnissins rædd m.a um að hefja þurfi undirbúning á hönnun og útboðsgögnum fyrir þekju. Hafnarstjóra falið að óska eftir fundi með forstöðumanni Siglingasviðs Vegagerðarinnar.
4. Samgöngustofa: Öryggismál á hafnarsvæðum
Bréf um öryggismál í höfnum frá Samgöngustofu lagt fram til kynningar
Bréfið lagt fram. Hafnarstjórn ræddi mikilvægi þess að vera ávalt með öryggismál í forgangi.