Hafnarstjórn Grindavíkur - 439. fundur
- 09.11.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 439
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Viktor Scheving Ingvarssonaðalmaður
- Pétur Már Benediktssonaðalmaður
- Gunnar Ari Harðarsonvaramaður
- Andrés Óskarssonvaramaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Grindavíkurhöfn: Fjárhagsáætlun 2016
Hafnarstjórn áréttar að fjárhæðir og tímaáætlanir til uppbyggingar á Miðgarði verði í samræmi við tillögur Vegagerðarinnar og hafnarstjórnar.
2. Grindavíkurhöfn: Gjaldskrá
Tillaga að gjaldskrá árið 2016
Hafnarstjórn samþykkir gjaldskrá hafnarinnar fyrir árið 2016, sem verður að mestu leyti óbreytt.
3. Hvalaskoðun: Farþegagjöld
Bréf frá Hvalskoðun Reykjavík ehf
Málið lagt fram, hafnarstjórn ítrekar það að nýta skuli alla tekjustofna sem gjaldskrá hafnarinnar fela í sér.
4. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030.
Eftir að frystitogarar Þorbjarnar hf færðu sig yfir á Suðurgarð í vesturhöfninni, skapast tækifæri að nýta Eyjabakka og land þar við undir hafsækna starfssemi s.s. uppskipun og geymslu á salti og öðrum heilförmum.