Hafnarstjórn Grindavíkur - 433. fundur
- 09.03.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 433
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Viktor Scheving Ingvarssonaðalmaður
- Pétur Már Benediktssonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Gunnar Ari Harðarsonvaramaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Grindavíkurhöfn:Tilboð raforkueftirlitskerfi
Júlíus og Torfi frá remake fóru yfir tilboðið og svörðuðu spurningum hafnarstjórnar. Hafnarstjórn samþykkir tilboðið og óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun fyrir árið 2015
2. Grindavíkurhöfn;Ástand Ránargötu
Ástand Ránargötu er mjög slæmt og brýnt að fá Vegagerðina til þessa að laga veginn sérstaklega við hafnarvogina.
Hafnarstjórn telur afar brýnt að koma Ránargötu og þá sérstaklega við næst Miðgarði í viðunandi ástand. Ránargata er þjóðvegur í byggð og því er viðhald götunnar á ábyrgð Vegagerðarinnar. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að sjá til þess að úrbætur verði gerðar sem allra fyrst.
3. Króli: Tilboð flotbryggja
Hafnarstjórn samþykkir tilboð að upphæð 8.000.000 með vsk í nýja 25 metra flotbryggju frá Króla og felur hafnarstjóra að ganga frá samningum við hann.