Hafnarstjórn Grindavíkur - 418. fundur
- 06.05.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 418
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Páll Jóhann Pálssonformaður
- Pétur Már Benediktssonaðalmaður
- Bergþóra Gísladóttiraðalmaður
- Eiríkur Óli Dagbjartssonaðalmaður
- Andrés Óskarssonvaramaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Beiðni um breytingu á vegtengingu frá hafnarsvæði
Hafnarstjórn tekur undir hugmyndir um betri vegtengingu frá hafnarsvæði að Nesvegi vegna mikillar uppbyggingar iðnaðarsvæða vestan við Grindavik. Hafnarstjórn telur rétt að notast áfram við Garðsveg frá Ægisgötu að austurhorni Kreppu en fara þaðan niður að Sjávarbraut. Hafnarstjórn beinir því til bæjaryfirvalda að hafa hafnarstjórn með í ráðum í málum sem varða skipulagsmál á hafnarsvæði samanber 3. grein hafnarreglugerðar fyrir Grindavíkurhöfn.
2. Stefnumótun Grindavíkurhafnar
Framhald umræðu frá síðasta fundi.
Stefnumótun Grindavíkurhafnar samþykkt. Hafnarstjóra falið að fylgja henni eftir.
3. Umsókn um byggingarleyfi Grindavíkurbraut 11
Hafnarstjórn beinir því til sviðstjóra Skipulags - og Umhverfissviðs að nýtanlegt uppgreftrarefni sem fellur til við framkvæmdir í landi Grindavíkur verði nýtt í landfyllingar á hafnasvæði.