Frístunda- og menningarnefnd - 82. fundur
- 03.04.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 82
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Kynning á starfsemi Íþróttamannvirkja
Hermann tekur á móti okkur, segir frá starfsemi íþróttamannvirkjanna og sýnir okkur aðstöðuna.
Nefndin heimsótti Íþróttamiðstöð Grindavíkur og fékk kynningu á starfseminni frá Hermanni Guðmundssyni, forstöðumanni íþróttamannvirkja.
2. Verklagsreglur vegna kjörs á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur
Framhald frá síðasta fundi. Drög að verklagsreglum lögð fyrir.
Drög að verklagsreglum vegna kjörs á íþróttafólki Grindavíkur lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir að auglýsa drög að reglunum á heimasíðu bæjarins þar sem íbúum og hagaðilum gefst kostur á að gera athugasemdir við reglurnar fyrir 1. maí n.k.
3. Reglugerð og vinnureglur Íþrótta- og afrekssjóðs Grindavíkur
Auglýst var eftir ábendingum og athugasemdum vegna reglugerðar og vinnureglna íþrótta- og afrekssjóðs Grindavíkur þann 11. mars. Skilafrestur var til 1. apríl. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
Auglýst var eftir ábendingum og athugasemdum vegna endurskoðunar reglugerðar og vinnureglna íþrótta- og afrekssjóðs Grindavíkur. Skilafrestur var til 1. apríl. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.
4. Samstarfssamningur á milli Grindavíkurbæjar og Grindavíkurkirkju
Grindavíkurkirkja óskar eftir endurnýjun samstarfssamnings við Grindavíkurbæ.
Grindavíkurkirkja óskar eftir endurnýjun samstarfssamnings við Grindavíkurbæ. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að óska eftir frekari upplýsingum frá Grindavíkurkirkju fyrir næsta fund nefndarinnar.
5. Samstarfssamningur 2019-2021
Drög að nýjum samningi við Brimfaxa lögð fram.
Drög að samstarfssamningi við Hestamannafélagið Brimfaxa lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að óska eftir frekari upplýsingum frá Hestamannafélaginu Brimfaxa fyrir næsta fund nefndarinnar.
6. Ósk um styrk
Lögð fram drög að samningi við Íþróttafélagið Nes í framhaldi af umræðum á síðasta fundi.
Drög að samnstarfssamningi við Íþróttafélagið Nes lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir drögin og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að leggja samninginn fyrir bæjarráð.
7. Samstarfssamningur við KFUM og KFUK vegna leikjanámskeiða 2019
KFUM og KFUK á Íslandi óska eftir stuðningi við leikjanámskeið í Grindavík í júní nk. Styrkurinn væri í formi nemenda úr Vinnuskólanum, 4-5 á hvert námskeið.
Lagt fram erindi frá KFUM og KFUK á Íslandi þar sem óskað er eftir stuðningi við leikjanámskeið í júní. Frístunda- og menningarnefnd tekur vel í erindið og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna drög að samningi og leggja fyrir nefndina.
8. Menningarvika í Grindavík 2019
Óskað eftir umræðum um hvernig til tókst og hvert framhaldið á að vera.
Rætt um Menningarviku sem að fram fór 9.-17. mars sl. Frístunda- og menningarnefnd leggur til að umræða um framtíð Menningarviku verði tekin í tengslum við endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar.
9. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Í ljósi þess að ráðast á í stefnumótunarvinnu fyrir Kvikuna og gerð ferðamálastefnu gæti verið ráð að taka menningarstefnu Grindavíkur til endurskoðunar í leiðinni. Núverandi stefna er frá 2015.
Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að setja af stað vinnu við endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar.
10. Sjóarinn síkáti 2019
Lögð fram drög að dagskrá Sjóarans síkáta 2019, farið yfir fjárhagsáætlun og rætt um næstu skref.
Drög að dagskrá Sjóarans síkáta 31. maí - 2. júní nk. lögð fram.
11. Hátíðarhöld 17. júní 2019
Rætt um fyrirkomulag hátíðarhalda í tilefni af 17. júní.
Rætt um fyrirkomulag hátíðarhalda í tilefni af 17. júní.
12. Leiksvæði og aðstaða til íþróttaiðkunar utanhúss
Óskað var eftir umræðu um leiksvæði og aðstöðu til íþróttaiðkunar utanhúss, s.s. leikvelli, körfuboltavelli o.s.frv.
Rætt um leiksvæði og aðstöðu til íþróttaiðkunar utanhúss. Nefndin felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna úttekt á leiksvæðum og aðstöðu til íþróttaiðkunar utanhúss.
13. Kvikan - Greinargerð um starfsemi og stöðu
Greinargerð um starfssemi Kvikunnar lögð fram til kynningar og umræðu.
Greinagerð um stöðu Kvikunnar lögð fram. Nefndin fagnar því að ráðast eigi í stefnumótunarvinnu fyrir starfsemi hússins.