Frístunda- og menningarnefnd - 117. fundur
- 24.08.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 117
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Sigríður Etna Marinósdóttirformaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirvaraformaður
- Þórunn Erlingsdóttirvaramaður
- Hulda Kristín Smáradóttiraðalmaður
- Auður Arna Guðfinnsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Framtíð sundlaugarsvæðis
Drög að þarfagreiningu vegna endurnýjunar sundlaugarsvæðisi lögð fram.
Unnið verður að forhönnun sundlaugarsvæðisins í vetur. Í maí var auglýst á vef Grindavíkurbæjar eftir hugmyndum frá íbúum þar sem þeim gafst kostur á að koma hugmyndum sínum, ábendingum og athugasemdum á framfæri. Í auglýsingunni sagði m.a. að leitað væri að hugmyndum sem endurspegli hlutverk laugarinnar sem miðstöð sundkennslu, vellíðunar og leikja fyrir íbúa á öllum aldri.
Hugmyndir íbúa voru lagðar fyrir fund frístunda- og menningarnefndar þann 27. júní sl. Á þeim fundi var sviðsstjóra falið að vinna tillögur að framtíðarsýn fyrir sundlaugarsvæðið sem byggja á þeim hugmyndum sem bárust.
Minnisblað sviðsstjóra lagt fram þar sem hugmyndir íbúa vegna endurhönnunar sundlaugarsvæðisins hafa verið teknar saman í tillögur að framtíðarsýn fyrir svæðið. Nefndin vann frekar úr tillögunum á fundinum og felur sviðsstjóra að leggja þær fyrir bæjarráð.2. Opnunartími ungmennahúss
Ungmennahús var opið eitt kvöld í viku sl. vor. Taka þarf ákvörðun um framhaldið.
Ungmennahús ætlað 16-25 ára var starfandi sem tilraunaverkefni á fimmtudagskvöldum fyrri hluta árs. Samantekt forstöðumanns Þrumunnar um starfsemi ungmennahússins lögð fram.
Nefndin leggur til við bæjarráð að tryggja áframhaldandi rekstur ungmennahússins.3. Málstefna Grindavíkurbæjar
Grindavíkurbæ ber að setja sér málstefnu sbr. 130. gr. sveitastjórnarlaga.
Grindavíkurbæ ber að setja sér málstefnu sbr. 130. gr. sveitastjórnarlaga. Nefndin felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
4. Frístundastyrkir
Óskað eftir umræðu um frístundastyrki fyrir börn sem ekki stunda íþróttir.
Rætt um möguleikann á að taka upp styrkjakerfi í frístundastarfi fyrir börn og unglinga með lögheimili í Grindavík sem ekki stunda íþróttir hjá íþróttafélögum með samstarfssamninga við Grindavíkurbæ.
Grindavíkurbær styður nú þegar vel við íþróttastarf í Grindavík sem tryggir lág æfingagjöld.
Nefndin telur að styðja þurfi við foreldra barna sem ekki stunda íþróttir. Markmiðið væri að öll börn og unglingar geti tekið þátt í frístundastarfi óháð efnahag eða félagslegri stöðu.
Nefndin felur sviðsstjóra að afla frekari gagna.5. Umsókn um styrk vegna íþróttaafreka
Nökkvi Már Jónsson sækir um fræðslustyrk á grundvelli 7. gr. reglna um styrki vegna íþróttaafreka. Málið lagt fyrir að nýju ásamt gögnum.
Nefndin samþykkir að veita Nökkva Má Jónssyni styrk að upphæð kr. 45.000 á grundvelli 7. gr. reglna um styrki vegna íþróttaafreka.
6. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Lára Lind Jakobsdóttir sækir um starfsstyrk 2023.
Lára Lind Jakobsdóttir sækir um starfsstyrk 2023 í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.7. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Drög að samsstarfssamningi við Grindavíkurkirkju lögð fram.
Drög að samsstarfssamningi við Grindavíkurkirkju lögð fram. Nefndin samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs.
8. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Listvinafélag Grindavíkur sækir um starfsstyrk. Framhald umræðu frá síðasta fundi.
Frekari upplýsingar um starfsemi félagsins lagðar fram. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
9. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Pílufélag Grindavíkur sækir um starfsstyrk. Framhald umræðu frá síðasta fundi.
Þórunn vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Frekari upplýsingar um starfsemi félagsins lagðar fram. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.10. Starfsáætlun frístunda- og menningarnefndar 2022-2026
Unnið í starfsáætlun frístunda- og menningarnefndar 2022-2026.
Unnið í starfsáætlun frístunda- og menningarnefndar 2022-2026.