Frístunda- og menningarnefnd - 80. fundur
- 06.02.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 80
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Verklagsreglur vegna kjörs á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur
Verklagsreglur vegna kjörs á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur lagðar fram til endurskoðunar.
Samþykkt að taka verklagsreglur vegna kjörs á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur til endurskoðunar. Óskað verður eftir ábendingum frá íþróttafélögum og deildum sem að rétt hafa á að tilnefna íþróttafólk í kjörinu samkvæmt gildandi reglum auk þess sem nefndin óskar eftir ábendingum frá íbúum fyrir 1. mars.
2. Eftirfylgni samninga á frístunda- og menningarsviði 2018
Samkvæmt samningi við UMFG ber frístunda- og menningarnefnd að samþykkja greinargerðir frá UMFG áður en til greiðslu afreksstyrks kemur.
Greinagerðir frá UMFG vegna unglinga- og afreksstyrks 2018 lagðar fram. Nefndin samþykkir greinagerðirnar með vísan í samstarfssamning við UMFG.
3. Umsókn í Afrekssjóð - Srdjan Tufegdzic
Srdjan Tufegdzic óskar eftir styrk úr Afrekssjóði vegna þjálfaranámskeiðs á Írlandi í lok janúar.
Lögð fram umsókn um styrk í Afrekssjóð. Umsókn hafnað á grundvelli reglna um Afrekssjóð og áherslur á styrkingu unglingastarfs.
4. Golfklúbbur Grindavíkur: Endurnýjun samstarfssamnings
Samningnum við Golfklúbb Grindavíkur var vísað á nýju til nefndarinnar vegna greina 14.-16. í samnignum. Lagt er til að einfalda þær og sameina í eina.
Nefndin samþykkir breytingar á drögum að samningi og vísar til bæjarráðs til umfjöllunar.
5. Minja- og sögufélag Grindavíkur: endurnýjun samninga
Drög að samstarfssamningi við Minja- og sögufélag Grindavíkur lögð fram. Félagið hefur fallist á breytingar á samningnum. Til viðbótar hefur framlag vinnuskólans verið verðmetið.
Nefndin samþykkir breytingar á drögum að samningi og vísar til bæjarráðs til umfjöllunar.
6. Kvennakór Grindavíkur - Samstarfssamningur 2019-2021
Kvennakór Grindavíkur óskar eftir styrk. Lagt er til að styrkja kórinn með sambærilegum hætti og Karlakór Grindavíkur árið 2013.
Nefndin samþykkir drög að samningi við Kvennakór Grindavíkur og vísar til bæjarráðs til afgreiðslu.
7. Menningarvika í Grindavík 2019
Rætt um Menningarviku í Grindavík sem að fram fer 9.-17. mars nk. Nefndin þarf m.a. að afhenda menningarverðlaun Grindavíkur.
Menningarvika í Grindavík fer fram 9.-17. mars. Drög að dagskrá vikunnar lögð fram. Bæjarbúar eru hvattir til að taka þátt í vikunni.
8. Sjóarinn síkáti 2019
Drög að verkefnisáætlun fyrir Sjóarann síkáta lögð fram. Hátíðin fer fram 31. maí til 2. júní í ár.
Sjóarinn síkáti fer fram dagana 31. maí til 2. júní nk. Verkefnisáætlun fyrir hátíðina lögð fram.
9. Vinnuskólinn - Starfsáætlun 2019
Drög að handbók Vinnuskólans í Grindavík sumarið 2019 lögð fyrir nefndina til kynningar og umræðu.
Drög að handbók Vinnuskólans í Grindavík sumarið 2019 lögð fram. Nefndin vonast til þess að Vinnuskólinn gangi vel og verði vel sóttur í sumar. Þá vonar nefndin að vinnan verði markviss og fjölbreytt.
10. Stafræn endurgerð Bæjarbótar
Í tengslum við sýningu á efni úr Bæjarbót í Menningarvikunni hefur komið til tals að gera blaðið aðgengilegt á timarit.is. Kostnaður kemur til með að liggja fyrir í byrjun næstu viku.
Nefndin felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að leita eftir samningum við útgefanda Bæjarbótar og Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn um stafræna endurgerð Bæjarbótar.