Frístunda- og menningarnefnd - 94. fundur
- 24.04.2020
- Fundargerð
- Kl. 13:00 - 14:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 94
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Kórónuveiran COVID-19
Farið yfir þær aðgerðir sem gripið hefur verið til á frístunda- og menningarsviði vegna Covid-19 og samkomubanns.
Farið yfir þær aðgerðir sem gripið hefur verið til á frístunda- og menningarsviði vegna Covid-19 og samkomubanns, s.s. breytingar á viðburðum og opnunartímum stofnana.
2. Sjóarinn síkáti 2020
Farið yfir áhrif samkomubanns á Sjóarann síkáta.
Sjóarinn síkáti mun ekki fara fram um sjómannadagshelgina í ár í ljósi aðstæðna í samfélaginu.
3. Hátíðarhöld 17. júní 2020
Rætt um fyrirkomulag hátíðarhalda í tilefni af 17. júní.
Rætt um fyrirkomulag hátíðarhalda í tilefni af 17. júní. Sviðsstjóri mun vinna áfram í málinu.
4. Heiti hátíðarsvæðis fyrir neðan Kvikuna
Lagður fram listi yfir þær tillögur sem bárust á viðburðatorg við Kvikuna.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að viðburðatorgið neðan við Kvikuna verði nefnt Húllið. Heitið er sótt í hafsvæðið milli Reykjaness og Eldeyjar. Röstin er í Húllinu og viðeigandi að viðburðir í Grindavík fari fram í Röstinni eða Húllinu.
5. Menningarverðlaun Grindavíkurbæjar 2020
Bóka þarf hver fær menningarverðlaun Grindavíkurbæjar 2020.
Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samhljóða að veita Kristínu Pálsdóttur menningarverðlaun Grindavíkurbæjar 2020 fyrir framlag sitt til barnamenningar.
6. Ráðning forstöðumanns Þrumunnar
Farið yfir þær umsóknir sem bárust um starf forstöðumanns Þrumunnar.
Umsóknarfrestur um starf forstöðumanns Þrumunnar rann út 22. apríl sl. Eftirfarandi fjórir sóttu um starfið.
Eiríkur Jóhannesson
Elínborg Ingvarsdóttir
Melkorka Ýr Magnúsdóttir
Rakel Ósk Ólafsdóttir
Sviðsstjóri mun vinna málið áfram.7. Vinnuskóli Grindavíkurbæjar 2020
Farið yfir skráningar í Vinnuskóla Grindavíkur í sumar.
Sviðsstjóri fór yfir undirbúning fyrir Vinnuskóla Grindavíkurbæjar í sumar.
8. Ósk um aðstöðu fyrir Pílufélag Grindavíkur
Bæjarstjórn vísar drögum að samningi við Pílufélag Grindavíkur aftur til nefndarinnar.
Frestað til næsta fundar.