Frístunda- og menningarnefnd - 121. fundur
- 07.12.2022
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 121
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Sigríður Etna Marinósdóttirformaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirvaraformaður
- Viktor Guðberg Haukssonaðalmaður
- Hulda Kristín Smáradóttiraðalmaður
- Auður Arna Guðfinnsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Framtíðarsýn fyrir leikvelli
Rætt um framtíðarsýn fyrir leikvelli.
Rætt um framtíðarsýn fyrir leikvelli í Grindavík. Nefndin telur þörf á að ráðast í hönnun leiksvæða innanbæjar og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
2. Úttekt á jafnréttismálum í íþrótta- og frístundastarfi í Grindavík
Í jafnréttisáætlun Grindavíkurbæjar segir að vinna skuli óháða úttekt á jafnréttismálum í íþrótta- og æskulýðsstarfi innan sveitarfélagsins á árinu 2023.
Í jafnréttisáætlun Grindavíkurbæjar segir að vinna skuli óháða úttekt á jafnréttismálum í íþrótta- og æskulýðsstarfi innan sveitarfélagsins á árinu 2023. Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri mun vinna úttektina á fyrri hluta næsta árs.
3. Fjárhagsáætlun 2023 - Frístunda- og menningarsvið
Farið yfir fjárhagsáætlun frístunda- og menningarsviðs 2023.
Fjárhagsáætlun frístunda- og menningarsviðs 2023 lögð fram.
4. Íþróttafólk Grindavíkur 2022
Kl. 18:00 fer fram kjör á íþróttafólki Grindavíkur á Salthúsinu.
Fulltrúar úr aðalstjórn UMFG, þau Klara Bjarnadóttir, Bjarni Már Svavarsson, Ásgerður Karlsdóttir og Gunnlaugur Hreinsson sátu fundinn undir þessum lið. Einnig sátu fundinn Helgi Bogason og Jón Júlíus Karlsson fyrir hönd þeirra deilda UMFG og félaga sem tilnefndu íþróttafólk, þjálfara og lið í kjörinu.
Fram fór kjör um íþróttafólk Grindavíkur. Kjörinu verður lýst í Gjánni 29. desember kl. 18:00.