Frístunda- og menningarnefnd - 112. fundur
- 09.02.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 112
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirformaður
- Sigríður Etna Marinósdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Endurskoðun verklagsreglna vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur
Verklagsreglur vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur teknar til endurskoðunar samanber umræðu á síðasta fundi.
Rætt um verklagsreglur vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur.
Aðalstjórn UMFG leggur til að kjörið verði áfram leynilegt en niðurstaðan verði kynnt kjörnefnd á kjörfundi. Kjörnefnd hafi þá möguleika á að endurtaka kosninguna að því gefnu að 2/3 hluti fundarmanna samþykki það.
Nefndin samþykkir að gera ekki breytingar á verklagsreglunum.2. Leiksvæði í Grindavík
Uppfærð drög að skýrslu um framtíðarsýn fyrir leiksvæði í Grindavík lögð fram.
Uppfærð drög að skýrslu um framtíðarsýn fyrir leiksvæði í Grindavík lögð fram. Nefndin felur sviðsstjóra að óska eftir umsögn um skýrsluna frá hagaðilum.
3. Vinnuskóli Grindavíkurbæjar 2022
Drög að skipulagi Vinnuskóla Grindavíkurbæjar sumarið 2022 lögð fram.
Drög að starfsáætlun Vinnuskóla Grindavíkurbæjar sumarið 2022 lögð fram. Nefndin samþykkir starfsáætlunina.
4. Samþykkt fyrir ungmennaráð - Endurskoðun 2022
Drög að endurskoðaðri samþykkt fyrir ungmennaráð lögð fram.
Drög að endurskoðaðri samþykkt fyrir ungmennaráð lögð fram. Nefndin samþykkir samþykktirnar fyrir sitt leyti með áorðnum breytingum og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
5. Barnabókasafn
Félag um barnabókasafn leitar til Grindavíkurbæjar til að hýsa Barnabókasafn, barnamenningarmiðstöð og fræðasetur um barnamenningu.
Félag um barnabókasafn hefur leitað til Grindavíkurbæjar að hýsa Barnabókasafn, barnamenningarmiðstöð og fræðasetur um barnamenningu. Nefndin felur sviðsstjóra að afla frekari gagna.
6. Fundargerðir ungmennaráðs 2021
Fundargerðir 43. og 44. fundar ungmennaráðs lagðar fram.
Fundargerðir 43. og 44. fundar ungmennaráðs lagðar fram.
7. Fundargerðir ungmennaráðs 2022
Fundargerð ungmennaráðs lögð fram.
Fundargerð 45. fundar ungmennaráðs lögð fram.