Frístunda- og menningarnefnd - 88. fundur
- 06.11.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 88
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Kristín Gísladóttirvaramaður
- Sigríður Etna Marinósdóttirvaramaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2019-2021
Rætt um stöðu málsins og lagt fram nýjasta tilboð Grindavíkurbæjar til UMFG.
Sviðsstjóri kynnti stöðu málsins.
2. Íþróttafólk Grindavíkur 2019
Taka þarf ákvörðun um hvort nefndin vilji tilnefna einstaklinga í kjörinu. Lagt er til að kjörfundur fari fram fimmtudaginn 5. desember kl. 18:00.
Íþróttafólk Grindavíkur verður útnefnt á Gamlársdag kl. 11:00. Kjörfundur mun fara fram fimmtudaginn 5. desember kl. 18:00.
3. Fjárhagsáætlun 2020 - Frístunda- og menningarsvið
Fjárhagsáætlun frístunda- og menningarsviðs eins og hún lítur út eftir fyrri umræðu í bæjarstjórn lögð fram til kynningar.
Fjárhagsáætlun frístunda- og menningarsviðs fyrir árið 2020 lögð fram til kynningar.
4. Samstarfssamningur við Slysavarnardeildina Þórkötlu 2020-2021
Slysavarnardeildin Þórkatla hefur ekki svarað tilboði nefndarinnar frá síðasta fundi.
Frestað til næsta fundar.
5. Stefnumótun fyrir Kvikuna
Stefnumótun Kvikunnar ásamt niðurstöðum úr viðtölum, rýnifundum, íbúafundi og fundi með atvinnulífinu lögð fram auk forgangsröðun aðgerða.
Sviðsstjóri kynnti drög að stefnumótun fyrir Kvikuna og drög að forgangsröðun aðgerða ásamt niðurstöðum úr viðtölum, rýnifundum, íbúafundi og fundi með atvinnulífinu.
6. Menningarviðurkenningar Grindavíkurbæjar
Drög að verklagsreglum vegna afhendingar menningarviðurkenninga Grindavíkurbæjar lagðar fram.
Drög að verklagsreglum vegna afhendingar menningarviðurkenninga Grindavíkurbæjar lagðar fram. Nefndin felur sviðsstjóra að kynna reglurnar á vef Grindavíkurbæjar og gefa íbúum kost á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
7. Sjávarréttahátíð í Grindavík 2019
Uppi eru hugmyndir um að fram fari sjávarréttahátíð í Grindavík haustið 2020. Sótt hefur verið um styrk í Uppbyggingarsjóð Suðurnesja.
Sviðsstjóri kynnti hugmyndir að sjávarréttahátíð sem til stendur að fram fari í Grindavík haustið 2020.
8. Tónlistarhátíð á Suðurnesjum
Uppi eru hugmyndir um tónlistarhátíð á Suðurnesjum. Kallað er eftir afstöðu nefndarinnar.
Sviðsstjóri kynnti hugmyndir að tónlistarhátíð á Suðurnesjum. Nefndin tekur vel í hugmyndina og felur sviðsstjóra að vinna áfram að framgangi hugmyndarinnar.
9. Fyrirspurn um kaup á bátasafni
Lögð fram fyrirspurn um áhuga á kaupum á bátasafni Jónatans Jóhanns Stefánssonar.
Lögð fram fyrirspurn um áhuga á kaupum á bátasafni í einkaeigu. Nefndin leggur til við bæjarráð að afþakka tilboðið þar sem safnið hefur ekki beina tengingu við Grindavík.