Frístunda- og menningarnefnd - 109. fundur
- 03.11.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 109
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirformaður
- Sigríður Etna Marinósdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Rafíþróttadeild UMFG
Aðalstjórn UMFG óskar eftir aðkomu Grindavíkurbæjar í nefnd sem hefði það markmið að kanna kosti og galla þess að stofna rafíþróttadeild innan UMFG.
Framkvæmdastjóri UMFG sat fundinn undir þessum lið.
Aðalstjórn UMFG óskar eftir aðkomu Grindavíkurbæjar að nefnd sem hefði það markmið að kanna kosti og galla þess að stofna rafíþróttadeild innan UMFG. Nefndin tekur jákvætt í erindið og leggur til að Þórunn Erlingsdóttir og forstöðumaður Þrumunnar verði fulltrúar Grindavíkurbæjar í nefndinni.2. Framtíð sundlaugarsvæðis
Rætt um framtíð sundlaugarsvæðis.
Framkvæmdastjóri UMFG sat fundinn undir þessum lið.
Farið yfir þarfagreiningu vegna framtíðaruppbyggingar sundlaugarsvæðis frá 2019 og skýrslu um skipulag sundlaugarsvæðis frá 2013.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að unnið verði að hönnun sundlaugamannvirkja samhliða deiliskipulagningu íþróttasvæðisins.3. Íþróttafólk Grindavíkur 2021
Taka þarf ákvörðun um hvort nefndin vilji tilnefna einstaklinga, lið eða þjálfara í kjörinu. Fyrirkomulag kjörsins og útnefning verður til umræðu.
Framkvæmdastjóri UMFG sat fundinn undir þessum lið.
Rætt um fyrirkomulag kjörs og útnefningu á íþróttafólki Grindavíkur 2021.
Frístunda- og menningarnefnd hefur möguleika á að tilnefna einstaklinga með lögheimili í Grindavík sem skarað hafa fram úr í íþróttum og utan íþróttafélaga í Grindavík. Nefndin mun ekki nýta rétt sinn til að tilnefna í ár.4. Fjárhagsáætlun 2022 - Frístunda- og menningarsvið
Rætt um fjárhagsáætlun frístunda- og menningarsviðs árið 2021 eins og hún lítur út eftir fyrri umræðu.
Fjárhagsáætlun frístunda- og menningarsviðs 2022 lögð fram eins og hún lítur út eftir fyrri umræðu í bæjarstjórn.
5. Nikótínpúðar í íþróttamannvirkjum
Lagt fram erindi frá forstöðumanni íþróttamannvirkja vegna notkunar nikótínpúða.
Lagt fram erindi frá forstöðumanni íþróttamannvirkja vegna nikótínpúðanotkunar gesta. Notkun nikótínpúða er vandamál í íþróttamannvirkjunum og fylgir mikill sóðaskapur. Nefndin bendir á að forstöðumenn hafa heimild til að setja reglur í sínum stofnunum en styður tillögu forstöðumanns íþróttamannvirkja að banna notkun púðanna á íþróttasvæðinu.
6. Ungt fólk 2021
Farið yfir helstu niðurstöður Ungs fólks 2021.
Niðurstöður Ungs fólks 2021, könnunar á líðan og högum ungs fólks í Grindavík lögð fram. Könnunin var lögð fyrir í febrúar 2021.
7. Styrkir vegna íþróttaafreka 2021
Sviðsstjóri hefur afgreitt eftirfarandi umsóknir um styrki vegna íþróttaafreka:
Alex Máni Pétursson: 25.000 kr.
Alexander Veigar Þorvaldsson: 25.000 kr.
Tómas Breki Bjarnason: 25.000 kr.Frístunda- og menningarnefnd staðfestir eftirfarandi styrkúthlutanir vegna íþróttaafreka:
Alex Máni Pétursson: 25.000 kr.
Alexander Veigar Þorvaldsson: 25.000 kr.
Tómas Breki Bjarnason: 25.000 kr.8. Lýðheilsuteymi - 5
Fundargerð 5. fundar lýðheilsuteymis Grindavíkurbæjar lögð fram til kynningar.