Frístunda- og menningarnefnd - 83. fundur
- 08.05.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 83
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá sem afbrigði mál 1905018 Suðurnesjarall Aífs 2019 sem 10. lið dagskrár.
Samþykkt samhljóða.
1. Verklagsreglur vegna kjörs á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur
Verklagsreglurnar lagðar fram til staðfestingar.
Drög að verklagsreglum vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur lagðar fram. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir reglurnar og vísar þeim til bæjarráðs.
2. Reglur um styrki vegna íþróttaafreka
Lögð fram drög að reglum vegna íþróttaafreka. Lagt til að vísa drögunum til umsagnar hjá íþróttafélögum og á grindavik.is.
Drög að reglum um styrki vegna íþróttaafreka lagðar fram. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir að auglýsa drög að reglunum á heimasíðu bæjarins þar sem íbúum og hagaðilum gefst kostur á að gera athugasemdir við reglurnar fyrir 1. júní n.k.
3. Verklagsreglur vegna samstarfssamninga við félagasamtök á frístunda- og menningarsviði
Æskilegt er að setja verklagsreglur um hvernig standa skuli að samningagerð við félagasamtök. Til að byrja með legg ég til að við auglýsum að samningar sem greiða eigi eftir á árinu 2020 verði að vera tilbúnir í haust.
Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna verklagsreglur vegna samninga við félagasamtök. Nefndin felur sviðsstjóra að auglýsa að samningar sem greiða á eftir á árinu 2020 verði að liggja fyrir 1. september 2019.
4. Samstarfssamningur á milli Grindavíkurbæjar og Grindavíkurkirkju
Lögð fram umbeðin gögn frá Grindavíkurkirkju vegna barna- og unglingastarfs.
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Grindavíkurkirkju. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarráðs.
5. Samstarfssamningur við KFUM og KFUK vegna leikjanámskeiða 2019
Lögð fram drög að samstarfssamningi við KFUM og KFUK á Íslandi vegna leikjanámskeiða í Grindavík.
Lögð fram drög að samstarfssamningi við KFUM og KFUK á Íslandi. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarráðs.
6. Samstarfssamningur við Félag eldri borgara í Grindavík 2020-2021
Lögð fram drög að samnstarfssamningi við Félag eldri borgara í Grindavík 2020-2021.
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Félag eldri borgara í Grindavík. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarráðs.
7. Samstarfssamningur 2019-2021
Lögð fram umbeðin gögn vegna draga að samstarfssamningi við Brimfaxa.
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Hestamannafélagið Brimfaxa. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að boða fulltrúa félagsins á næsta fund nefndarinnar.
8. Leikja- og frístundanámskeið sumarið 2019
Rætt um leikja- og frístundanámskeið sumarið 2019.
Rætt um leikja- og frístundanámskeið sumarið 2019.
9. 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar 2024
Vek athygli á því að Grindavíkurbær mun fagna 50 ára kaupstaðarafmæli 2024. Rætt hefur verið um að rita sögu bæjarins. Ef ætlunin er að verkið komi út á afmælisárinu þarf að hefjast handa fljótlega.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að hugað verði sem fyrst að 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar árið 2024, m.a. með ritun sögu bæjarins í huga.
10. Suðurnesjarall Aífs 2019
Lagt er til að taka erindi Akstursíþróttafélags Suðurnesja fyrir með afbrigðum.
Akstursíþróttafélag Suðurnesja leggur fram tillögu um rallkeppni í Grindavík 31. maí eða 1. júní. Frístunda- og menningarnefnd gerir ekki athugasemdir við það að keppnin fari fram en leggur til að settar verði strangar kröfur um umgengni á keppnissvæðinu.