Frístunda- og menningarnefnd - 102. fundur
- 03.03.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 102
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirformaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Ástand knattspyrnuvalla og götun
Lagt fram erindi frá vallarverði Grindavíkurvallar og framkvæmdastjóra Golfklúbbs Grindavíkur þar sem lýst er yfir áhyggjum af ástandi íþróttavalla í Grindavík.
Framkvæmdastjóri UMFG sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram erindi frá vallarverði Grindavíkurvallar og framkvæmdastjóra Golfklúbbs Grindavíkur þar sem lýst er yfir áhyggjum af ástandi íþróttavalla í Grindavík.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að gert verði ráð fyrir kaupum á gatara fyrir íþróttavellina í Grindavík í fjárhagsáætlun 2022. Nefndin felur sviðsstjóra jafnframt að kanna kosti þess að setja gervigras á Grindavíkurvöll.2. Lýðheilsustefna Grindavíkurbæjar
Lögð fram drög að yfirmarkmiðum lýðheilsustefnu Grindavíkurbæjar.
Lögð fram drög að yfirmarkmiðum lýðheilsustefnu Grindavíkurbæjar. Sviðsstjóri gerði grein fyrir næstu skrefum við mótun stefnunnar. Nefndin samþykkir yfirmarkmiðin eins og þau liggja fyrir.
3. Fjölþætt heilsuefling 65+ - Staðan í upphafi árs 2021
Lagt fram minnisblað um stöðu Fjölþættrar heilsueflingar 65 í Grindavík.
Lagt fram minnisblað um stöðu Fjölþættrar heilsueflingar 65 í Grindavík. Nefndin lýsir yfir ánægju sinni með verkefnið.
4. Menningarverðlaun Grindavíkurbæjar 2021
Lagðar fram innsendar tilnefningar til menningarverðlauna Grindavíkurbæjar 2021.
Rætt um tilnefningar til menningarverðlauna Grindavíkurbæjar 2021.
5. Rökkurró 2021
Rætt um hvernig til tókst og hvort að vilji sé til að endurtaka viðburðinn að ári.
Viðburðurinn Rökkurró fór fram dagana 5.-7. febrúar sl. Nefndin lýsir ánægju sinni með hvernig til tókst. Lagt er til að viðburðurinn fari næst fram um miðjan janúar.
6. Menningarvor í Grindavík 2021
Rætt um stöðu mála og drög að dagskrá lögð fram.
Rætt um stöðu mála og drög að dagskrá lögð fram.
7. Sjóarinn síkáti 2021
Farið yfir stöðu mála.
Rætt um stöðu mála og fyrstu drög að dagskrá lögð fram.
8. Auglýsingaskilti í Grindavíkurbæ Reglugerð
Drög að reglum um staðsetningu og útlit auglýsingaskilta lögð fram.
Drög að reglum um staðsetningu og útlit auglýsingaskilta í Grindavík lögð fram.
Nefndin leggur til að heimilt verði að setja tímabundið upp auglýsingaskilti á einstökum viðburðum á vegum Grindavíkurbæjar, m.a. Sjóaranum síkáta og 17. júní án þess að óska þurfi eftir heimild byggingafulltrúa.
Nefndin leggur áherslu á að í reglunum verði gert ráð fyrir því að íþróttafélög með samstarfssamning við Grindavíkurbæ hafi áfram rúma heimild til þess að setja upp auglýsingaskilti í fjáröflunarskini við sína keppnisvelli í samráði við sviðsstjóra og forstöðumann íþróttamannvirkja.9. Starfsemi Pólska skólans í Reykjavík
Lagt fram minnisblað frá fundi starfsmanna Grindavíkurbæjar og skólastjóra Pólska skólans í Reykjavík. Óskað er eftir stuðningi við börn sem sækja skólann.
Lagt fram minnisblað frá fundi starfsmanna Grindavíkurbæjar og skólastjóra Pólska skólans í Reykjavík. Óskað er eftir stuðningi við börn sem sækja skólann.
Nefndin tekur jákvætt í að styðja tvítyngd börn til náms í skólanum. Málinu er vísað til afgreiðslu í bæjarráði.10. Fundargerðir ungmennaráðs 2021
Fundargerð 41. fundar ungmennaráðs lögð fram.
Fundargerð 41. fundar ungmennaráðs lögð fram.
11. Lýðheilsuteymi - 3
Fundargerð 3. fundar lýðheilsuteymis Grindavíkurbæjar lögð fram.