Frístunda- og menningarnefnd - 119. fundur
- 05.10.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 119
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Sigríður Etna Marinósdóttirformaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirvaraformaður
- Viktor Guðberg Haukssonaðalmaður
- Hulda Kristín Smáradóttiraðalmaður
- Petra Rós Ólafsdóttirvaramaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Deiliskipulag íþróttasvæðis
Tillaga að deiliskipulagi íþróttasvæðis lögð fram til umfjöllunar. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og framkvæmdastjóri UMFG sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tillaga að deiliskipulagi íþróttasvæðis lögð fram til kynningar. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir endurbótum á knattspyrnuvelli og nýrri lýsingu á keppnis- og æfingavöllum. Þá eru byggingareitir endurskipulagðir á svæðinu þannig að lögun og hæð skapi sem minnstan skugga og séu aðlagandi í heildarásýnd svæðisins. Einnig mun útivistargildi svæðisins aukast með nýjum göngustígum.2. Ástand gervigrass í Hópinu
Úttektaraðili tók út gervigrasið í Hópinu í kjölfar síðasta fundar nefndarinnar. Samantekt af fundi með úttektaraðilanum lögð fram.
Framkvæmdastjóri UMFG sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram samantekt frá fundi með úttektaraðila sem skoðaði ástand gervigrass í Hópinu. Að mati úttektaraðilans eru tvær leiðir færar til þess að bæta aðstæður til knattspyrnuiðkunar og draga úr slysahættu. Annars vegar er hægt að lengja líftíma grassins um tvö ár með viðgerðum á núverandi grasi en hins vegar skipta út grasinu.
Fulltrúar B, D og U lista hvetja bæjarráð til að setja nýtt gervigras hið fyrsta á Hópið í staðinn fyrir að fara í tímabundnar lausnir.
Fulltrúar M lista taka undir bókun fulltrúa B, D og U lista.3. Samanburður á æfingagjöldum íþróttafélaga
Lagt fram yfirlit yfir samanburð á æfingagjöldum íþróttafélaga milli sveitarfélaga.
Framkvæmdastjóri UMFG sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Samantekt á æfingagjöldum íþróttafélaga á suðvesturhorninu lagt fram.4. Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði - UMFG
Innsend gögn frá UMFG vegna starfsstyrks 2022 lögð fram.
Framkvæmdastjóri UMFG sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Innsend gögn frá aðalstjórn UMFG vegna starfsstyrks 2022 lögð fram.
Nefndin felur sviðsstjóra að hefja undirbúning að endurskoðun samstarfssamnings við UMFG sem rennur út 31. desember 2024.5. Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði - Knattspyrnufélagið GG
Innsend gögn frá Knattspyrnufélaginu GG vegna starfsstyrks 2022 lögð fram.
Innsend gögn frá Knattspyrnufélaginu GG vegna starfsstyrks 2022 lögð fram.
6. Starfsstyrkir á frístunda- og menningarsviði 2023
Lagt fram yfirlit yfir starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði á árinu 2023.
Yfirlit yfir starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði á árinu 2023 lagt fram.
Grindavíkurbær mun greiða félagasamtökum eða einstaklingum sem starfa að frístunda- og menningarmálum í sveitarfélaginu 96.400.000 kr. í styrki á árinu 2023. Til viðbótar leggur sveitarfélagið félagasamtökum til húsnæði og/eða styrkir með greiðslu fasteignagjalda.7. Undirskriftalisti vegna opnunartíma sundlaugar
Lagður fram undirskriftalisti með 168 undirskriftum þar sem lagt er til að sundlaugin verði opin til kl. 21:00 um helgar yfir vetrartímann í stað kl. 16:00.
Lagður fram undirskriftalisti með 168 undirskriftum þar sem lagt er til að sundlaugin verði opin til kl. 21:00 um helgar yfir vetrartímann í stað kl. 16:00.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að íþróttamannvirkin verði opin til kl. 18:00 um helgar yfir vetrartímann.8. Aðstaða og vélakostur Golfklúbbs Grindavíkur
Erindi frá Golfklúbbi Grindavíkur lagt fram þar sem óskað er eftir styrk til kaupa á vinnuvélum og fjárfestingu á golfvelli klúbbsins.
Erindi frá Golfklúbbi Grindavíkur lagt fram þar sem óskað er eftir styrk til kaupa á vinnuvélum og fjárfestingu á golfvelli klúbbsins.
Nefndin tekur vel í erindi klúbbsins og vísar því til umfjöllunar í bæjarráði.9. Ósk um styrk á móti greiðslu fasteignagjalda
Minja- og sögufélag Grindavíkur eignaðist nýlega fasteignina Kreppu og óskar eftir styrk á móti greiðslu fasteignagjalda.
Minja- og sögufélag Grindavíkur eignaðist nýlega fasteignina Kreppu og óskar eftir styrk á móti greiðslu fasteignagjalda.
Nefndin óskar eftir áætlun frá félaginu um uppbyggingu hússins til þess að hægt sé að taka afstöðu til málsins.10. Þjónustugjaldskrá á frístunda- og menningarsviði 2023
Rætt um þjónustugjaldskrá á frístunda- og menningarsviði 2023.
Rætt um þjónustugjaldskrá á frístunda- og menningarsviði 2023.
Nefndin leggur til að ekki verði tekið gjald fyrir árskort á bókasafninu en þess í stað verði sektir vegna vanskila hækkaðar. Þá leggur nefndin til að börn undir 10 ára aldri og íbúar eldri en 65 ára þurfi ekki að greiða aðgangseyri í sund. Nefndin felur sviðsstjóra í samráði við forstöðumenn að leggja fram tillögu að þjónustugjaldskrá fyrir bæjarráð.