Frístunda- og menningarnefnd - 123. fundur
- 01.02.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 123
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Anna Elísa Karlsdóttir Longvaramaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirvaraformaður
- Þórunn Erlingsdóttirvaramaður
- Hulda Kristín Smáradóttiraðalmaður
- Petra Rós Ólafsdóttirvaramaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Framkvæmdir í Hópinu 2023
Forstöðumaður íþróttamannvirkja mætir á fundinn. Farið yfir framkvæmdir í Hópinu.
Forstöðumaður íþróttamannvirkja og framkvæmdastjóri UMFG sátu fundinn undir þessum lið.
Samkvæmt fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar fyrir árið 2023 stendur til að ráðast í viðgerðir á gervigrasinu í Hópinu og skipta út lýsingu í húsinu.
Bókun fulltrúa B, D og U lista
Í ljósi nýrra upplýsinga frá þeim aðila sem tók út gervigrasið í Hópinu óskaði formaður, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í samráði við fulltrúa B og U, eftir að setja málefnið á dagskrá. Í framhaldi var boðað til fundar með úttektaraðilanum og fór sá fundur fram í morgun, 1. febrúar. Í ljósi þeirra upplýsinga sem fram komu á fundinum hvetur nefndin til þess að skipt verði um gervigras á Hópinu fyrr en áætlað var og að vinna við útboð vegna framkvæmdanna hefjist sem fyrst.
Fulltrúar M lista taka undir bókunina.2. Hönnun sundlaugarsvæðis og aðliggjandi mannvirkja
Uppfærð frumdrög lögð fram og farið yfir stöðu málsins.
Forstöðumaður íþróttamannvirkja og framkvæmdastjóri UMFG sátu fundinn undir þessum lið.
Uppfærð frumdrög að hönnun á nýju sundlaugarsvæði lögð fram. Nefndin lýsir yfir ánægju með teikningarnar eins og þær liggja fyrir og felur sviðsstjóra að kynna þær fyrir bæjarráði.3. Vinnuskóli Grindavíkurbæjar 2023
Rætt um fyrirkomulag Vinnuskóla Grindavíkurbæjar í sumar.
Í fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2023 er gert ráð fyrir því að færa vinnuskólann yfir í tímabilaskiptan vinnuskóla, þ.e. með svipuðum hætti og mörg sveitarfélög hafa gert á undanförnum árum. Þá fá nemendur úthlutað tímabili í stað þess að starfa allt sumarið.
Rætt um ólíkar útfærslur á starfsemi vinnuskólans. Nefndin leggur til að vinnuskólanum verði skipt í fjögur tímabil. Hver nemandi kemur þá til með að vinna tvö tímabil af fjórum. Sviðsstjóra er falið að útfæra tillöguna frekar.4. Þjónustukönnun Janusar heilsueflingar 2023
Þjónustukönnun meðal þátttakenda í Fjölþættri heilsueflingu 65+ lögð fram.
Þjónustukönnun meðal þátttakenda í Fjölþættri heilsueflingu 65 lögð fram. Könnunin sýnir að 94% þátttakenda í Grindavík líkar mjög vel við þá þjónustu sem veitt er í verkefninu. 71% þátttakenda hafa fundið fyrir mjög jákvæðum eða jákvæðum breytingum á andlegri og félagslegri líðan eftir að þátttaka í verkefninu hófst.
5. 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Grindvíkurbær fagnar 50 ára kaupstaðarafmæli á næsta ári. Ræða þarf skipun afmælisnefndar og næstu skref.
Grindavíkurbær fagnar 50 ára kaupstaðarafmæli 10. apríl 2024. Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að skipuð verði afmælisnefnd sem í eiga sæti fimm fulltrúar. Fulltrúarnir skulu endurspegla fjölbreytni samfélagsins í Grindavík.
6. Menningarverðlaun Grindavíkurbæjar 2023
Farið yfir gildandi reglur um menningarverðlaun Grindavíkurbæjar.
Farið yfir verklagsreglur um afhendingu menningarverðlauna Grindavíkurbæjar. Stefnt er að afhendingu verðlaunanna 17. apríl 2023.
7. Dagskrá menningarhúsanna 2023
Drög að dagskrá menningarhúsanna í Grindavík 2023 lögð fram.
Drög að dagskrá menningarhúsanna í Grindavík 2023 lögð fram.
8. Fundargerðir ungmennaráðs 2023
Fundargerð 51. fundar ungmennaráðs lögð fram.
Fundargerð 51. fundar ungmennaráðs lögð fram.