Frístunda- og menningarnefnd - 111. fundur
- 19.01.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 111
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirformaður
- Sigríður Etna Marinósdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Deiliskipulag íþróttasvæðis
Frumdrög að deiliskipulagi íþróttasvæðis lögð fram.
Framkvæmdastjóri UMFG sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Frumdrög að breyttu deiliskipulagi fyrir íþróttasvæðið við Austurveg lögð fram.2. Íþróttafólk Grindavíkur 2021
Framkvæmdastjóri UMFG situr fundinn undir þessum lið. Rætt um hvernig til tókst með kjör og útnefningu á íþróttafólki Grindavíkur 2021.
Framkvæmdastjóri UMFG sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir hvernig til tókst með kjör og útnefningu á íþróttafólki Grindavíkur 2021.
Aðalstjórn UMFG leggur til að kjörið verði áfram leynilegt en niðurstaðan verði kynnt kjörnefnd á kjörfundi. Kjörnefnd hafi þá möguleika á að endurtaka kosninguna að því gefnu að 2/3 hluti fundarmanna samþykki það.
Nefndin samþykkir að taka tillöguna fyrir á næsta fundi.3. Íþrótta- og frístundastefna Grindavíkurbæjar
Endurskoða þarf stefnu Grindavíkurbæjar í þessum málaflokkum.
Endurskoða þarf íþrótta- og frístundastefnu Grindavíkurbæjar.
Nefndin felur sviðsstjóra að hefja undirbúning að endurskoðun íþrótta- og frístundastefnu Grindavíkurbæjar.4. Styrkir vegna íþróttaafreka 2021
Sviðsstjóri hefur afgreitt eftirfarandi umsóknir um styrki vegna íþróttaafreka:
A lið Pílufélags Grindavíkur: 450.000 kr.
Matthías Örn Friðriksson: 45.000 kr.Frístunda- og menningarnefnd staðfestir eftirfarandi styrkúthlutanir vegna íþróttaafreka:
A lið Pílufélags Grindavíkur: 450.000 kr.
Matthías Örn Friðriksson: 45.000 kr.5. Leiksvæði í Grindavík
Drög að skýrslu um framtíðarsýn fyrir leiksvæði í Grindavík lögð fram.
Drög að framtíðarsýn fyrir leiksvæði í Grindavík lögð fram. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
6. Samþykkt fyrir frístunda- og menningarnefnd - Endurskoðun 2022
Drög að endurskoðaðri samþykkt fyrir frístunda- og menningarnefnd lögð fram.
Drög að endurskoðaðri samþykkt fyrir frístunda- og menningarnefnd lögð fram. Nefndin samþykkir samþykktirnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
7. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Drög að menningarstefnu tekin fyrir að nýju.
Drög að menningarstefnu Grindavíkurbæjar tekin fyrir að nýju. Nefndin samþykkir breytingar á drögunum fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu í bæjarráði.
8. Dagskrá menningarhúsanna í Grindavík 2022
Ekki hafa verið skipulagðir viðburðir í menningarhúsunum næstu vikur vegna mikillar óvissu um sóttvarnir og samkomutakmarkanir.
Ekki hafa verið skipulagðir viðburðir í menningarhúsunum Grindavíkurbæjar næstu vikur vegna mikillar óvissu um sóttvarnir og samkomutakmarkanir.
9. Sjóarinn síkáti 2022
Gert er ráð fyrir að Sjóarinn síkáti fari fram 10.12. júní nk. Mikil óvissa er hvernig skipulagi hátíðarinnar verður háttað.
Gert er ráð fyrir að Sjóarinn síkáti fari fram 10.12. júní nk. Mikil óvissa er hvernig skipulagi hátíðarinnar verður háttað.
Nefndin leggur áherslu á að skipuleggja fjölskyldudagskrá á laugardegi en sunnudagurinn verði hátíðlegri. Ekki er gert ráð fyrir dagskrá á föstudagskvöldi eins og verið hefur.