Frístunda- og menningarnefnd - 122. fundur
- 11.01.2023
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 17:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 122
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Sigríður Etna Marinósdóttirformaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirvaraformaður
- Viktor Guðberg Haukssonaðalmaður
- Hulda Kristín Smáradóttiraðalmaður
- Auður Arna Guðfinnsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Verklagsreglur vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur
Taka þarf ákvörðun um endurskoðun verklagsreglna vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur. Núgildandi reglur eru frá 2020.
Verklagsreglur vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur frá 2020 lagðar fram.
Nefndin telur ekki þörf á að endurskoða reglurnar að þessu sinni.2. Hönnun sundlaugarsvæðis og aðliggjandi mannvirkja
Farið yfir stöðu málsins.
Frumdrög að hönnun á nýju sundlaugarsvæði lögð fram ásamt minnisblaði um gang hönnunarvinnu á sundlaugarsvæðinu. Stefnt er að því að kynna tillögur íbúum í febrúar.
3. Húsnæðismál ungmennahúss
Lagt fram erindi frá ungmennaráði þar sem óskað er eftir afnotum af Kvennó fyrir ungmennahús.
Lagt fram erindi frá ungmennaráði þar sem ráðið óskar eftir afnotum af Kvennó fyrir ungmennahús.
Nefndin telur ekki tímabært að taka afstöðu til erindisins þar sem húsið er í útleigu en lýsir yfir áhuga sínum á að finna lausn á húsnæðismálum ungmennahúss.4. Reglur um styrkveitingar Grindavíkurbæjar til uppbyggingar gamalla húsa í Grindavík
Taka þarf ákvörðun um endurskoðun reglna um styrkveitingar Grindavíkurbæjar til uppbyggingar gamalla húsa í Grindavík. Núgildandi reglur eru frá árinu 2006.
Reglur um styrkveitingar Grindavíkurbæjar til uppbyggingar gamalla húsa í Grindavík frá 2006 lagðar fram.
Nefndin leggur til við bæjarráð að fella reglurnar úr gildi.5. Dagskrá menningarhúsanna 2023
Rætt um dagskrá menningarhúsanna vorið 2023.
Rætt um viðburði í menningarhúsunum vorið 2023.
6. Sjóarinn síkáti 2023
Sjóarinn síkáti fer fram helgina 2.-4. júní nk. Óskað er eftir umræðu um fyrirkomulag hátíðarinnar, dagskráratriði o.fl.
Lögð fram verkefnisáætlun fyrir Sjóarann síkáta. Hátíðin fer fram 2.-4. júní nk.
7. Ljósmyndasýning utanhúss
Styrkur fékkst úr Uppbyggingarsjóði Suðurnesja til uppsetningar ljósmyndasýningar utanhúss í sumar.
Grindavíkurbær hefur hlotið styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurnesja fyrir ljósmyndasýningu utanhúss. Stefnt er að því að setja sýninguna upp í sumar.
8. Fundargerðir ungmennaráðs 2022
Fundargerðir 49. og 50. fundar ungmennaráðs lagðar fram.