Frístunda- og menningarnefnd - 118. fundur
- 07.09.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 20:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 118
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Sigríður Etna Marinósdóttirformaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirvaraformaður
- Viktor Guðberg Haukssonaðalmaður
- Hulda Kristín Smáradóttiraðalmaður
- Petra Rós Ólafsdóttirvaramaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Heimsóknir í stofnanir á frístunda- og menningarsviði
Stofnanir á frístunda- og menningarsviði heimsóttar (Þruman menningarhús, Bókasafn Grindavíkur, bókasafn í Hópsskóla, íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar og Kvikan menningarhús).
Nefndin heimsótti félagsmiðstöðina Þrumuna, Bókasafn Grindavíkur, Hópsskóla, íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar og Kvikuna menningarhús. Nefndin hitti forstöðumenn stofnanna og kynnti sér starfsemi þeirra.
2. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Drög að samstarfssamningi við Listvinafélag Grindavíkur lögð fram.
Drög að samsstarfssamningi við Listvinafélag Grindavíkur lögð fram. Nefndin samþykkir samningsdrögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
3. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Drög að samstarfssamningi við Pílufélag Grindavíkur lögð fram.
Drög að samsstarfssamningi við Pílufélag Grindavíkur lögð fram. Nefndin samþykkir samningsdrögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
4. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Drög að samstarfssamningi við Láru Lind Jakobsdóttur lögð fram.
Drög að samsstarfssamningi við Láru Lind Jakobsdóttur lögð fram. Nefndin samþykkir samningsdrögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
5. Fjárhagsáætlun 2023 - Frístunda- og menningarsvið
Rætt um helstu áherslur í fjárhagsáætlun frístunda- og menningarsviðs 2023.
Eftir heimsóknir á stofnanir á frístunda- og menningarsviði leggur nefndin áherslu á eftirfarandi við gerð fjárhagsáætlunar 2023:
*Lokið verði við deiliskipulag íþróttasvæðisins og forhönnun sundlaugarsvæðisins.
*Ráðinn verði starfsmaður í 100% starfshlutfall í félagsmiðstöðina Þrumuna.
*Skipt verði um gervigras og undirlag í Hópinu í kjölfar mats úttektaraðila ef viðkomandi telur þörf á því.
*Bæta aðgengi að knattspyrnuvellinum og Hópinu þannig að aðgengi verði fyrir alla.
*Ráðinn verði starfsmaður í 50% starfshlutfall á Bókasafn Grindavíkur sem sinnir safni í Hópsskóla.
*Aukið fjármagn verði sett í viðhald og uppbyggingu leikvalla.
*Haldið verði áfram að styðja við menningarstarfsemi í Kvikunni.6. Framtíð sundlaugarsvæðis
Farið yfir stöðu mála.
Sviðsstjóri fór yfir stöðu mála varðandi forhönnun sundlaugarsvæðis.
Bæjarráð samþykkti á 1620. fundi sínum þann 6. september sl. að tillögur frístunda- og menningarnefndar sem samþykktar voru á 117. fundi nefndarinnar verði notaðar til grundvallar við hönnun svæðisins.7. Gestastofa Reykjanes jarðvangs
Hugmyndabók fyrir gestastofu Reykjanes Geopark í Kvikunni lögð fram.
Hugmyndabók fyrir gestastofu Reykjanes Geopark í Kvikunni lögð fram.
8. Dagskrá menningarhúsanna í Grindavík 2022
Dagskrá menningarhúsanna í Grindavík haustið 2022 lögð fram.
Dagskrá menningarhúsanna í Grindavík haustið 2022 lögð fram.
9. Viðburðir um jól og áramót 2022-2023
Rætt um viðburðahald um jól og áramót 2022-2023.
Rætt um viðburðahald um jól og áramót 2022-2023.