Frístunda- og menningarnefnd - 78. fundur
- 05.12.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 78
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Sigurður Enokssonaðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Íþróttamaður og íþróttakona Grindavíkur 2018 - Tilnefningar frístunda- og menningarnefndar
Frístunda- og menningarnefnd hefur möguleika á að tilnefna einstaklinga með lögheimili í Grindavík sem skarað hafa fram úr í íþróttum sem ekki eru til staðar í Grindavík og því utan deilda UMFG. Óskað er eftir umræðu um hvort að nefndin eigi að nýta sér þennan möguleika.
Frístunda- og menningarnefnd hefur möguleika á að tilnefna einstaklinga með lögheimili í Grindavík sem skarað hafa fram úr í íþróttum sem ekki eru til staðar í Grindavík og því utan deilda UMFG. Nefndin mun ekki nýta rétt sinn til að tilnefna að þessu sinni.
2. Þrettándagleði 2019
Þrettándagleðin 2019 verður með svipuðum hætti og undanfarin ár. Dagskrá verður við íþróttamiðstöðina með þeim möguleika að færa hana í Gjánna ef veðrið er þannig. Dagskráin hefst kl. 19:00 með söngatriðum, m.a. álfadrottningu og álfakóng, útnefning á Grindvíkingi ársins, úrslit í búningakeppni og jólasveinar koma í heimsókn. Flugeldasýning við höfnina hefst að lokinni dagskrá.
Þrettándagleðin 2019 verður með svipuðum hætti og undanfarin ár. Dagskrá verður við íþróttamiðstöðina með þeim möguleika að færa hana í Gjánna ef þannig viðrar.
3. Endurskoðun sameiginlegrar menningarstefnu - Erindi frá SSS
Samstarfshópur um menningarmál á Suðurnesjum hefur lagt það til við stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum að sameiginleg menningarstefna sveitarfélaganna á fjögurra verði tekin til endurskoðunar. Stjórn SSS óskar eftir heimild frá sveitarfélögunum fjórum til þess að ráðast í verkefnið. Framlag Grindavíkurbæjar verður vinnuframlag sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs.
Samstarfshópur um menningarmál á Suðurnesjum hefur lagt það til við stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum að sameiginleg menningarstefna sveitarfélaganna fjögurra verði tekin til endurskoðunar. Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarstjórn að Grindavíkurbær taki þátt í verkefninu.
Fylgiskjöl
4. Grindavíkurkirkja - Skýrsla um æskulýðsstarf haust 2017 og vor 2018
Skýrslan lögð fram.
Skýrslan lögð fram til kynningar. Frístunda- og menningarnefnd fagnar fjölbreyttu starfi KFUM og KFUK í Grindavík.