Frístunda- og menningarnefnd - 86. fundur
- 04.09.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 86
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Reglur um styrki vegna íþróttaafreka
Drög að reglum vegna íþróttaafreka lögð fram.
Drög að reglum um styrki vegna íþróttaafreka lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
2. Vinnuskóli Grindavíkurbæjar 2019
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs um framkvæmd Vinnuskóla Grindavíkurbæjar 2019.
Rætt um framkvæmd Vinnuskóla Grindavíkur sumarið 2019 og fyrirkomulag skólans sumarið 2020. Frístunda- og menningarnefnd leggur til að nemendum í 7. bekk verði boðin vinna í Vinnuskólanum að ári.
3. Fjárhagsáætlun 2020 - Frístunda- og menningarsvið
Rætt um áherslur í fjárhagsáætlunargerð vegna næsta árs.
Rætt um áherslur í fjárhagsáætlunargerð á frístunda- og menningarsviði fyrir árið 2020.
4. Ósk um aðstöðu fyrir Pílufélag Grindavíkur
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Pílufélag Grindavíkur.
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Pílufélag Grindavíkur. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna áfram í málinu.
5. Samstarfssamningur við Slysavarnardeildina Þórkötlu 2020-2021
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Slysavarnardeildina Þórkötlu 2020-2021.
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Slysavarnardeildina Þórkötlu 2020-2021. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna áfram í málinu.
6. Viðburðir um jól og áramót 2019-2020
Lögð fram drög að dagskrá viðburða um jól og áramót 2019-2020.
Rætt um viðburði á vegum Grindavíkurbæjar um jól og áramót 2019-2020. Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs falið að vinna áfram í málinu.
7. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Rætt um fyrstu skrefin við endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar.
Rætt um næstu skref við endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar.
8. Heilsu- og forvarnavika á Suðurnesjum 2019
Sveitarfélögin á Suðurnesjum standa fyrir heilsu- og forvarnarviku í október nk.
Sveitarfélögin á Suðurnesjum standa fyrir heilsu- og forvarnarviku 30. september - 6. október nk. Dagskrá vikunnar verður auglýst á grindavik.is þegar hún liggur fyrir.
9. Beiðni um samstarf vegna kaupa á hoppuköstulum
Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur og Verkalýðsfélag Grindavíkur óska eftir samstarfi við Grindavíkurbæ vegna kaupa á hoppuköstulum til nota á viðburðum í sveitarfélaginu.
Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur og Verkalýðsfélag Grindavíkur óska eftir samstarfi við Grindavíkurbæ vegna kaupa á hoppuköstulum til nota á viðburðum í sveitarfélaginu. Frístunda- og menningarnefnd tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að leggja það fyrir bæjarráð.