Frístunda- og menningarnefnd - 92. fundur
- 04.03.2020
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 92
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Pétur Rúðrik Guðmundssonvaramaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Verklagsreglur vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur
Rætt um mögulegar breytingar á verklagsreglum vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur.
Rætt um mögulegar breytingar á verklagsreglum vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur. Sviðssjóra frístunda- og menningarsviðs falið að leggja fram tillögur að breytingum á næsta fundi nefndarinnar í samræmi við umræður á fundinum.
2. Styrkir vegna íþróttaafreka 2020
Lagðar fram umsóknir um fræðslustyrki.
Frestur til að sækja um fræðslustyrki rann út 25. febrúar sl. Ein umsókn barst nefndinni. Samþykkt að styrkja Anton Inga Rúnarsson og Milos Jugovic um samtals 100.000 kr. vegna kynnisferðar til Serbíu.
3. Samstarf sundlauga á Suðurnesjum
Lögð fram tillaga um að árskort í sund keypt í einu sveitarfélagi á Suðurnesjum gildi í þeim öllum.
Lagt fram minnisblað samráðshóps um heilsueflandi samfélag á Suðurnesjum. Samráðshópurinn leggur til við sveitarfélögin á Suðurnesjum að:
a) fella niður gjöld fyrir börn og ungmenni yngri en 18 ára þvert á sveitarfélög.
b) árskort í sundlaugarnar gildi á milli sundlauga á Suðurnesjum.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að öll árskort í sundlaugar á Suðurnesjum gildi á milli lauga á svæðinu að því gefnu að önnur sveitarfélög á Suðurnesjum samþykki tillögur samráðshópsins.4. Menningarverðlaun Grindavíkurbæjar 2020
Lagðar fram tilnefningar til menningarverðlauna Grindavíkurbæjar 2020.
Pétur Rúðrik Guðmundsson vék af fundi við afgreiðslu og umfjöllun málsins.
Farið yfir tilnefningar til menningarverðlauna Grindavíkurbæjar 2020.5. Menningarvor í Grindavík 2020
Dagskrá Menningarvors í Grindavík 2020 lögð fram.
Dagskrá Menningarvors í Grindavík 2020 lögð fram.
6. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Drög að Menningarstefnu Grindavíkurbæjar lögð fram.
Lögð fram drög að menningarstefnu Grindavíkurbæjar. Sviðsstjóri mun vinna áfram í málinu.