Frístunda- og menningarnefnd - 97. fundur
- 02.09.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 97
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Margrét Kristín Pétursdóttirvaramaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirformaður
- Jón Júlíus Karlssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Verklagsreglur vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur
Drög að uppfærðum verklagsreglum lagðar fram.
Lagðar fram tillögur að breytingum á verklagsreglum vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs.
2. Jafnréttis- og aðgerðaáætlun UMFG
Lagt fram minnisblað um ákvæði er snúa að jafnréttismálum í samstarfssamningi Grindavíkurbæjar og aðalstjórnar UMFG og samskipta sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs við aðalstjórn UMFG vegna jafnréttismála innan félagsins.
Lagt fram minnisblað um ákvæði er snúa að jafnréttismálum í samstarfssamningi Grindavíkurbæjar og aðalstjórnar UMFG og samskipta sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs við aðalstjórn UMFG vegna jafnréttismála innan félagsins.
Frístunda- og menningarnefnd fagnar því að hafin sé vinna við gerð jafnréttisstefnu fyrir UMFG ásamt aðgerðaáætlun.3. Framtíðaruppbyging íþróttamannvirkja í Grindavík
UMFG óskar eftir að hefja samstarf við Grindavíkurbær við vinnu að nýrri framtíðarsýn íþróttasvæðsins í Grindavík.
Ungmennafélag Grindavíkur óskar eftir því að hefja samstarf við Grindavíkurbæ við vinnu að nýrri framtíðarsýn íþróttasvæðsins í Grindavík.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að skipaður verði starfshópur til að leggja mat á kostnað og hugsanlegar sviðsmyndir vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja í Grindavík. Sviðsstjóra er falið að leggja fram tillögu að erinindisbréfi fyrir bæjarráð.4. Fjárhagsáætlun 2021 - Frístunda- og menningarsvið
Rætt um áherslur í fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2021.
Rætt um áherslur í fjárhagsáætlunargerð á frístunda- og menningarsviði fyrir árið 2021.
5. Lýðheilsuvísar fyrir Suðurnes 2020
Lýðheilsuvísar fyrir Suðurnes 2020 lagðir fram.
Lagðir fram lýðheilsuvísar fyrir Suðurnes 2020.
6. Vöktun áhrifaþátta heilbrigðis í Grindavík 2019
Lagðar fram niðurstöður könnunar á áhrifaþáttum heilbrigiðs sem framkvæmd var meðal Grindvíkinga árið 2019.
Lagðar fram niðurstöður könnunar á áhrifaþáttum heilbrigiðs sem framkvæmd var meðal Grindvíkinga árið 2019.
7. Kvöldopnun í Þrumunni fyrir ungmenni 16 ára og eldri
Forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Þrumunnar leggur til að húsnæðið verði opið eitt kvöld í viku fyrir ungmenni, 17 ára og eldri.
Forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Þrumunnar leggur til að húsnæðið verði opið eitt kvöld í viku fyrir ungmenni, 16 ára og eldri.
Frístunda- og menningarnefnd tekur jákvætt í hugmyndina og vísar málinu til bæjarráðs.8. Leiksvæði í Selskógi
Lögð fram tillaga um endurbætur á leiksvæðinu í Selskógi. Málið tekið fyrir að beiðni Þórunnar Erlingsdóttur.
Rætt um mögulegar endurbætur á leiksvæðinu í Selskógi. Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að við gerð deiliskipulags fyrir Selskóg verði gert ráð fyrir leiksvæði sem fellur að umhverfinu, samnaber önnur skógræktarsvæði á landinu.
9. Viðburðir um jól og áramót 2020-2021
V
Rætt um viðburði á vegum Grindavíkurbæjar um jól og áramót.
Lagt fram minnisblað um viðburði á vegum Grindavíkurbæjar um jól og áramót 2020-2021. Sviðsstjóra falið að leggja minnisblaðið fyrir bæjarráð.
10. Starfsemi Kvikunnar 2020
Farið yfir starfsemi Kvikunnar árið 2020.
Lögð fram samantekt verkefnastjóra framtíðarþróunar Kvikunnar um starfsemina í húsinu það sem af er ári 2020. Frístunda- og menningarnefnd lýsir yfir ánægju sinni með þær breytingar sem orðið hafa á starfsemi hússins á árinu. Nefndin leggur áherslu á að áfram verði unnið að þróun hússins á árinu 2021.
11. Endurskoðuð jafnréttisáætlun 2020
Drög að jafnréttisáætlun Grindavíkurbæjar er send til allra fasta nefndar Grindavíkurbæjar til umfjöllunar.
Drög að jafnréttisáætlun Grindavíkurbæjar lögð fram.
12. Boð um kaup á uppstoppuðum fuglum
Grindavíkurbæ hefur verið boðið að kaupa safn af uppstoppuðum fuglum.
Lagt fram boð um kaup á safni af uppstoppuðum fuglum í einkaeigu. Sviðsstjóra falið að afla frekari upplýsinga fyrir næsta fund nefndarinnar.
13. Sjávarréttahátíð í Grindavík 2020
Í ljósi aðstæðna er lagt til að sjávarréttahátíðinni sem fram átti að fara í Grindavík í haust verði frestað til ársins 2021.
Sjávarréttahátíð sem fram átti að fara í Grindavík haustið 2020 hefur verið frestað til ársins 2021.
14. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Drög að menningarstefnu Grindavíkurbæjar lögð fram.
Frestað til næsta fundar.
15. Sjávarauðlindaskólinn 2020
Starfsskýrsla Sjávarauðlindaskólans sumarið 2020 lögð fram til kynningar.
Starfsskýrsla Sjávarauðlindaskólans sumarið 2020 lögð fram til kynningar.