Frístunda- og menningarnefnd - 87. fundur
- 02.10.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 87
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2019-2021
Lögð fram drög að samstarfssamningi við UMFG.
Drög að samstarfssamningi við aðalastjórn UMFG 2020-2021 lögð fram með athugasemdum aðalstjórnar UMFG. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna áfram í málinu.
2. Styrkbeiðni vegna B-liðs
Lögð fram styrkbeiðni frá B-liði UMFG í meistarflokki kvenna í körfuknattleik.
B-lið UMFG í meistarflokki kvenna í körfuknattleik óskar eftir styrk til þátttöku í íslandsmóti. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna áfram í málinu.
3. Skipulag sundlaugarsvæðis
Þarfagreining vegna framtíðaruppbyggingar sundlaugarsvæðis í Grindavík lögð fram.
Þarfagreining vegna framtíðaruppbyggingar sundlaugarsvæðis í Grindavík lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd lýsir ánægju sinni með greininguna og leggur til við bæjarráð að skipuð verði bygginganefnd til þess að fylgja eftir tillögunum sem fram koma í skýrslunni.
4. Afrekssjóður
Sviðsstjóri hefur afgreitt eftirfarandi umsóknir um styrk úr íþrótta- og afrekssjóði:
Alex Máni Pétursson: 30.000 kr.
Alexander Veigar Þorvaldsson: 30.000 kr.
Jóhann Dagur Bjarnason: 50.000 kr.
Tómas Breki Bjarnason: 30.000 kr.Frístunda- og menningarnefnd staðfestir eftirfarandi úthlutanir úr Íþrótta- og afrekssjóði:
Alex Máni Pétursson: 30.000 kr.
Alexander Veigar Þorvaldsson: 30.000 kr.
Jóhann Dagur Bjarnason: 50.000 kr.
Tómas Breki Bjarnason: 30.000 kr.5. Ósk um aðstöðu fyrir Pílufélag Grindavíkur
Lögð fram uppfærð drög að samningi við Pílufélag Grindavíkur.
Uppfærð drög að samstarfssamningi við Pílufélag Grindavíkur 2020-2021 lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu í bæjarráði.
6. Samstarfssamningur við Slysavarnardeildina Þórkötlu 2020-2021
Slysavarnardeildin Þórkatla sættir sig ekki við drög að samstarfssamningi. Framhald málsins rætt.
Rætt um samstarfssamning við Slysavarnardeildina Þórkötlu. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna áfram í málinu.
7. Viðburðir um jól og áramót 2019-2020
Rætt um viðburði um jól og áramót 2019-2020.
Tendrað verður á jólatré Grindavíkurbæjar fyrir framan Íþróttamiðstöðina 29. nóvember, jólaball Grindavíkur fer fram í Gjánni 27. desember og þrettándagleði í og við Kvikuna 6. janúar. Ekki verður ármaótabrenna á vegum Grindavíkurbæjar líkt og undanfarin ár.
8. Gönguleið um sjávartengdar minjar
Lögð fram hugmynd að gönguleið um sjávartengdar minjar í Grindavík ásamt tillögu Landmótunar um bætt aðgengi gangandi að hafnarsvæðinu.
Lögð fram hugmynd að gönguleið um sjávartengdar minjar í Grindavík ásamt tillögu Landmótunar um bætt aðgengi gangandi að hafnarsvæðinu. Frístunda- og menningarnefnd lýsir yfir ánægju með fyrstu drög að gönguleiðinni. Nefndin leggur áherslu á að Kvikan verði anddyrri hafnarinnar og gætt verði að góðri tengingu við Sjómannagarðinn.
9. Menningarviðurkenningar Grindavíkurbæjar
Lagt er til að taka til endurskoðunar reglur um tilnefningu bæjarlistamanns Grindavíkurbæjar og reglur um menningarverðlaun Grindavíkur.
Rætt um reglur um tilnefningu bæjarlistamanns Grindavíkurbæjar og reglur um menningarverðlaun Grindavíkur. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að leggja fram tillögu að verklagsreglum vegna afhendingar menningarviðurkenninga Grindavíkurbæjar.