Frístunda- og menningarnefnd - 96. fundur
- 04.06.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 96
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirformaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Verklagsreglur vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur
Lagðar fram breytingar á verklagsreglum vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur sem ræddar voru á síðasta fundi nefndarinnar.
Lagðar fram tillögur að breytingum á verklagsreglum vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
2. Styrktarbeiðni vegna búnaðar til útsendinga íþróttakappleikja
UMFG óskar eftir styrk vegna kaupa á búnaði til vefútsendinga.
Lögð fram styrkbeiðni frá aðalstjórn UMFG vegna kaupa á búnaði til vefútsendinga. Frístunda- og menningarnefnd tekur jákvætt í erindið fyrir sitt leyti og vísar því til bæjarráðs.
3. Hjóla- og gönguvika í Grindavík
Hjóla- og gönguvika í Grindavík mun fara fram 24. - 27. júní nk.
Lögð fram drög að dagskrá Hjóla- og gönguviku í Grindavík 24.-27. júní nk.
4. Umsóknir um starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði 2021
Lagðar fram umsóknir um starfsstyrki vegna ársins 2021.
Auglýst var eftir starfsstyrkjum á frístunda- og menningarsviði vegna ársins 2021 þann 20. apríl sl. og rann umsóknarfrestur út 31. maí. Tvær umsóknir bárust. Nefndin felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
5. Hátíðarhöld 17. júní 2021
Lögð fram drög að dagskrá hátíðarhalda í tilefni af 17. júní.
Drög að dagskrá hátíðarhalda í tilefni af 17. júní lögð fram.
6. Leiksvæði í Selskógi
Lögð fram tillaga um endurbætur á leiksvæðinu í Selskógi. Málið tekið fyrir að beiðni Þórunnar Erlingsdóttur.
Frestað til næsta fundar.