Frístunda- og menningarnefnd - 120. fundur
- 02.11.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:25
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 120
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Sigríður Etna Marinósdóttirformaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirvaraformaður
- Þórunn Erlingsdóttirvaramaður
- Hulda Kristín Smáradóttiraðalmaður
- Auður Arna Guðfinnsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Íþróttafólk Grindavíkur 2022
Taka þarf ákvörðun um hvort nefndin vilji tilnefna einstaklinga, lið eða þjálfara í kjörinu. Fyrirkomulag kjörsins og útnefning verður til umræðu.
Rætt um fyrirkomulag kjörs og útnefningu á íþróttafólki Grindavíkur 2022. Frístunda- og menningarnefnd hefur möguleika á að tilnefna einstaklinga með lögheimili í Grindavík sem skarað hafa fram úr í íþróttum og utan íþróttafélaga í Grindavík. Nefndin mun ekki nýta rétt sinn á að tilnefna að þessu sinni.
2. Hönnun sundlaugarsvæðis og aðliggjandi mannvirkja
Frumdrög hönnunar sundlaugarsvæðis kynnt.
Frumdrög að hönnun sundlaugarsvæðis frá 18. október 2022 lögð fram ásamt niðurstöðu rýnifundar með hagaðilum.
Tillagan byggir á framtíðarsýn frístunda- og menningarnefndar fyrir sundlaugarsvæðið sem samþykkt var á 117. fundi nefndarinnar.3. Lýðheilsa á Suðurnesjum - Viðtalsrannsókn
Niðurstöður rannsóknar á lýðheilsu íbúa á Suðurnesjum lagaðar fram. Skýrslunni fylgja tillögur þátttakenda í rýnihópum hvernig bæta megi lýðheilsu íbúa.
Niðurstöður rannsóknar á lýðheilsu íbúa á Suðurnesjum lagaðar fram. Skýrslunni fylgja tillögur þátttakenda í rýnihópum hvernig bæta megi lýðheilsu íbúa.
4. Fjárhagsáætlun 2023 - Frístunda- og menningarsvið
Farið yfir stöðu mála.
Staða fjárhagsáætlunar 2023 kynnt.
5. Erindi til nefndasviðs Alþingis
Lagt fram erindi til fjárlaganefndar vegna stuðnings við gestastofu og samfélagsmiðstöð í Kvikunni.
Lagt fram erindi frá Grindavíkurbæ til fjárlaganefndar, dags. 27. okt. sl. vegna beiðni um stuðning við gestastofu og samfélagsmiðstöð í Kvikunni.
6. Undirskriftalisti vegna opnunartíma Þrumunnar
Lagður fram listi með undirskriftum 159 unglinga þar sem óskað er eftir fleira starfsfólki í Þrumuna til að tryggja opnun í öllum frímínútum.
Lagður fram listi með undirskriftum 159 unglinga þar sem óskað er eftir fleira starfsfólki í Þrumuna til að tryggja opnun í öllum frímínútum.
7. Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði - Golfklúbbur Grindavíkur
Innsend gögn frá Golfklúbbi Grindavíkur vegna starfsstyrks 2022 lögð fram.
Innsend gögn frá Golfklúbbi Grindavíkur vegna starfsstyrks 2022 lögð fram.
8. Landsmót unglingadeilda Slysavarnafélagsins Landsbjargar 2023
Erindi frá Unglingadeildinni Hafbjörgu lagt fram þar sem óskað er eftir styrk vegna landsmóts unglingadeilda Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sem að fram fer í Grindavík í júní 2023.
Erindi frá Unglingadeildinni Hafbjörgu lagt fram þar sem óskað er eftir styrk vegna landsmóts unglingadeilda Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sem að fram fer í Grindavík í júní 2023.
Nefndin tekur vel í erindið og vísar því til afgreiðslu í bæjarráði.9. Deiliskipulag við Þorbjörn
Deiliskipulagstillaga við Þorbjörn lögð fram til kynningar.
Deiliskipulagstillaga við Þorbjörn lögð fram til kynningar.
Nefndin leggur áherslu á að möguleiki verði að koma upp leiksvæði í Selskógi sem og sunnan við Þorbjörn.
Þá bendir nefndin á að þörf sé á að lýsa upp göngustíginn milli þéttbýlisins í Grindavík og Selskógar.10. Ósk um styrk á móti greiðslu fasteignagjalda
Gögn sem óskað var eftir í kjölfar síðasta fundar nefndarinnar lögð fram.
Minja- og sögufélag Grindavíkur eignaðist nýlega fasteignina Kreppu og óskar eftir styrk á móti greiðslu fasteignagjalda.
Nefndin óskaði eftir frekari gögnum frá félaginu á síðasta fundi sínum.
Nefndin leggur til við bæjarráð að veita félaginu styrk á móti greiðslu fasteignagjalda á árinu 2023 með þeim fyrirvara að unnið verði að uppbyggingu hússins á því ári í samræmi við framlögð gögn.11. Lýðheilsuteymi - 9
Fundargerð 9. fundar lýðheilsuteymis Grindavíkurbæjar lögð fram til kynningar.
Fundargerð 9. fundar lýðheilsuteymis Grindavíkurbæjar lögð fram til kynningar.