Frístunda- og menningarnefnd - 44. fundur
- 29.05.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:30 - 17:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 44
- Ritari: Þorsteinn Gunnarsson
Nefndarmenn
- Atli Geir Júlíussonaðalmaður
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Lovísa H Larsenformaður
- Ágústa Inga Sigurgeirsdóttiraðalmaður
- Þorsteinn Gunnarssonembættismaður
- Gunnlaugur Jón Hreinssonáheyrnarfulltrúi UMFG
- Kristín María Birgisdóttiraðalmaður
1. Austurvegur 1: umsókn um byggingarleyfi áfangi 2
Sigmar Árnason byggingafulltrúi kemur inn á fundinn.
Farið yfir stöðu á frágangi lóðar á útisvæði íþróttamiðstöðvar þar sem útboðsferli er nýlokið, samantekt verkeftirlitsmanns vegna nýrrar íþróttamiðstöðvar o.fl.
2. UMFG: Ársskýrsla 2014
Frestað þar sem aðalfundur UMFG hefur ekki farið fram.
3. Hilmir Kristjánssson: Umsókn í afrekssjóð (2)
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
4. Golfklúbbur Grindavíkur: Endurnýjun samstarfssamnings
Nefndin samþykkir nýjan samstarfssamning Grindavíkurbæjar við Golfklúbb Grindavíkur sem gildir til 31.12.2018 og leysir eldri samninga af hólmi. Búið er að sameina tvo mismunandi samninga við GG í einn. Sviðsstjóri og formaður frístunda- og menningarnefndar hafa fundað með fulltrúum GG og viðræðurnar gengið vel og GG samþykkt samninginn fyrir sitt leiti. Nefndin fagnar þeirri uppbyggingu sem framundan er með þessum samningi og svo samstarfssamningi GG við Bláa Lónið og Grindavíkurbæ.
5. Hestamannafélagið Brimfaxi: Barna- og unglingastarf
Nefndin samþykkir nýjan samstarfssamning Grindavíkurbæjar við Hestamannafélagið Brimfaxa með áorðnum breytingum, samningurinn gildir til 31.12.2018 þar sem m.a. er stutt við bakið á æskulýðsdeild Brimfaxa. Sviðsstjóri og fulltrúi frístunda- og menningarnefndar hafa fundað með fulltrúum Brimfaxa og viðræðurnar gengið vel og Brimfaxi samþykkt samninginn fyrir sitt leiti. Nefndin fagnar þeirri uppbyggingu sem á sér stað hjá Brimfaxa og hvetur félagið að vígja nýju reiðhöllina sem fyrst til að efla starfsemi félagsins enn frekar.
6. Styrkbeiðni: Minja- og sögufélagið óskar eftir styrk vegna fasteignagjalda
Minja- og sögufélag Grindavíkur óskar eftir að Grindavíkurbær veiti félaginu styrk til að mæta kostnaði vegna fasteignagjalda af fasteigninni Bakka sem hýsir starfsemi og muni félagsins. Sjá nánar á meðfylgjandi blaði.
Nefndin samþykkir að gerður verði einn heildar samstarfssamningur við Minja- og sögufélagið
7. Sjóarinn síkáti: 2015
Farið yfir dagskrána og skipulag
Sviðsstjóri kynnti dagskrá Sjóarans síkáta 2015.
8. 17. júní: Hátíðarhöld 2015
Farð yfir drög að dagskrá
Sviðsstjóri kynnti drög að hátíðarhöldum 17. júní í Grindavík.
9. Rannsókn og greining: Hagir og líðan ungs fólks í 5.-7. bekk 2015
Könnunin lögð fram.
10. Björgunarsveitin Þorbjörn: Ársskýrsla 2014
Ársskýrslan lögð fram.
11. Forvarnarteymi: Útskrifuð - og hvað svo?
Verkefnið kynnt.
12. Forvarnarteymi: Fundargerðir
Fundargerðin lögð fram.