Frístunda- og menningarnefnd - 34. fundur
- 29.08.2014
- Fundargerð
- Kl. 20:00 - 22:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 34
- Ritari: Þorsteinn Gunnarsson
Nefndarmenn
- Atli Geir Júlíussonaðalmaður
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Lovísa H Larsenformaður
- Nökkvi Harðarsonaðalmaður
- Þorsteinn Gunnarssonembættismaður
- Gunnlaugur Jón Hreinssonáheyrnarfulltrúi UMFG
1. Málefni bókasafns
Margrét R. Gísladóttir forstöðumaður bókasafnsins fór yfir flutningana á bókasafninu í nýtt húsnæði við grunnskólann og starfsemina í haust.
2. Æfingatöflur íþróttamannvirkja 2014 - 2015
Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja lagði fram æfingatöflur fyrir íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar veturinn 2014-2015. Enn vantar æfingatöflur fyrir knattspyrnudeildina í Hópinu.
3. Vaktatöflur í nýju íþróttamannvirki
Hermann fór yfir fyrstu drög að vaktatöflum fyrir starfsfólk íþróttamiðstöðvar en breyting verður á starfseminni með nýrri íþróttamiðstöð.
4. Félag eldri borgara í Grindavík óskar eftir aðstöðu fyrir púttvöll innanhúss
Félagið fær aðstöðu í bláu útistofu grunnskólans til bráðabirgða. Unnið er að stefnumótun í frístundamálum Grindavíkurbæjar.
5. Óskað er eftir aðstöðu fyrir pool-borð
Félagið fær aðstöðu í bláu útistofu grunnskólans til bráðabirgða. Unnið er að stefnumótun í frístundamálum Grindavíkurbæjar.
6. Sögu- og minjafélag Grindavíkur óskar eftir styrk
Félagið fær aðstöðu á efri hæð Kvennó til bráðabirgða. Unnið er að stefnumótun í frístundamálum Grindavíkurbæjar.
7. Umsókn um húsnæði fyrir Pílufélag Grindavík
Félagið fær aðstöðu á neðri hæð Kvennó til bráðabirgða. Unnið er að stefnumótun í frístundamálum Grindavíkurbæjar.
8. Úttekt á frístundastarfi á vegum Grindavíkurbæjar
Verkefnisáætlun stýrihóps lögð fram.
9. Stefnumótunarvinna um íþróttamál í Grindavík
Stefnumótunarfundur um íþróttamál var haldinn var 8. apríl 2013. Úr þeirri vinnu hefur aðeins verið samþykkt styrkur bæjarins til afreksstarfs UMFG fyrir þetta ár. Hins vegar á eftir að ljúka við stefnumótunina í heild sinni. Nefndin felur sviðsstjóra og formanni nefndarinnar að leggja fram verkefnisáætlun um stefnumótunina fyrir næsta fund nefndarinnar.
10. Umsókn í afrekssjóð - Jens Valgeir Óskarsson
Sviðsstjóri hefur afgreitt erindið. Lagt fram til staðfestingar.
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
11. Umsókn í Afrekssjóð - Jón Axel Guðmundsson
Sviðsstjóri hefur afgreitt - Lagt fram til staðfestingar
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
12. 40 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Drög að afmælisdagskrá afmælisnefndar fyrir haustið lögð fram.
13. Fundargerðir bygginganefndar íþróttamannvirkja.
Fundargerðir 20. og 21. fundar lagðar fram.
14. 100 ára kosningaréttur kvenna
Sviðsstjóra falið að vinna að myndarlegri dagskrá í tengslum við þennan atburði í samstarfi við félagasamtök.
15. Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2015-2018
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs fór yfir tímaramma fjárhagsáætlunar og hvatti nefndarmenn til að huga vel að nýjum og ferskum hugmyndum fyrir komandi ár.
16. Vinnuskóli 2014
Skýrsla um starfsemi Vinnuskólans 2014 lögð fram. Einnig skýrsla Codland um samstarfsverkefni með Vinnuskólanum
17. Rauði krossinn óskar eftir endurnýjun á samningi
Sviðsstjóra falið að gera nýjan samning við Grindavíkurdeild Rauða krossins á sömu forsendum til næstu þriggja ára.
18. 17. júní 2014
Nefndin telur að aukin fjölbreytni í dagskrá hafi gert þjóðhátíðardaginn enn skemmtilegri en áður.
19. Erindi frá Sögu- og minjafélagi Grindavíkur
Nefndin vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
20. Fundargerðir forvarnarteymis Grindavíkur
Fundargerð frá 10. júní lögð fram.