Frístunda- og menningarnefnd - 26. fundur
- 06.11.2013
- Fundargerð
- Kl. 20:00 - 22:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 26
- Ritari: Kristinn Reimarsson
Nefndarmenn
- Helena Bjarndís Bjarnadóttirformaður
- Unnar Á Magnússonaðalmaður
- Jóna Rut Jónsdóttiraðalmaður
- Helga Kristjánsdóttiraðalmaður
- Kristinn Jakob Reimarssonembættismaður
- Gunnlaugur Jón Hreinssonáheyrnarfulltrúi UMFG
- Kristín María Birgisdóttirvaramaður
1. Frístunda- og menningarsvið. Starfsáætlun 2014
Starfsáætlun frístunda- og menningarsviðs 2014.
Starfsáætlun frístunda- og menningarsviðs fyrir árið 2014 lögð fram til kynningar. Frístunda- og menningarnefnd þakkar sviðsstjóra og forstöðumönnum bókasafns og íþróttamiðstöðvar fyrir greinargóðar starfsáætlanir.
2. Menningarstefna Grindavíkurbæjar
Drög að menningarstefnu Grindavíkurbæjar kynnt.
Drög að menningarstefnu Grindavíkurbæjar lögð fram til kynningar. Frístunda- og menningarnefnd þakkar vinnuhópunum fyrir þeirra vinnu við gerð menningarstefnunnar og samþykkir að vísa henni til umfjöllunar bæjarráðs og bæjarstjórnar. Nefndin leggur til að ákvæði um bæjarlistarmann verði tekið til endurskoðunar.
3. Samningur vegna unglingastarfs Hafbjargar
Tillaga að endurnýjuðum samningi vegna unglingastarfs Hafbjargar.
Drög að endurnýjuðum samningi við Björgunarsveitina Þorbjörn vegna unglingastarfs Hafbjargar lagður fram til kynningar. Frístunda- og menningarnefnd gerir ekki athugasemdir við samninginn og leggur til við bæjarráð að hann verði samþykktur.
4. Samstarf á milli Grindavíkurbæjar og Grindavíkurkirkju um æskulýðsstarf.
Tillaga að endurnýjuðum samningi við Grindavíkurkirkju vegna æskulýðsstarfs.
Drög að endurnýjuðum samningi við Grindavíkursókn vegna barna- og unglingastarfs KFUM og K í Grindavíkurkirkju. Frístunda- og menningarnefnd gerir ekki athugasemdir við samninginn og leggur til við bæjarráð að hann verði samþykktur.
5. Göngu- og hjólabærinn Grindavík. Tillaga til umfjöllunar
Greinargerð. Lagðar fram tillögur í sex liðum.
Lögð fram greinargerð unnin af Helenu Bj. Bjarnadóttur formanni og Kristni J. Reimarssyni sviðsstjóra um tillögu bæjaráðs um göngu- og hjólabæinn Grindavík. Í lok greinargerðarinnar eru lagðar fram tillögur í sex liðum sem eru eftirfarandi:
- Lagt er til að settar verði 1.200.000 kr. í samgöngusamninga - samgöngustyrki á árinu 2014.
- Lagt er til að keypt verði 4 - 6 hjól strax á næsta ári fyrir starfsmenn til að hjóla á milli stofnanna.
- Lagt er til að samhliða áframhaldandi þátttöku í verkefninu Göngum/hjólum í skólann verði það útvíkkað inn á allar stofnanir Grindavíkurbæjar og jafnvel fleiri fyrirtækja í bænum.
- Lagt er til að hafin verði vinna við gerð göngu- og hjólastígakorts sem verði aðgengilegt á vef Grindavíkurbæjar 2015.
- Lagt er til að hugað verði sérstaklega að göngustígum fyrir eldri borgara út frá Víðihlíð/Miðgarði og jafnhliða verði settir upp bekkir fyrir eldra fólk eða fótalúna.
- Lagt er til að í 3 - 4 ára áætlun verði sett fjármagn í hjólaskýli við stofnanir Grindavíkurbæjar.
Frístunda- og menningarnefnd þakkar Helenu og Kristni fyrir greinargerðina og leggur til við bæjaráð að framsettum tillögum verði hrint í framkvæmd.6. Stefnumótunarvinna um íþróttamál í Grindavík
Greinargerð um íþróttatengd málefni sem bæjarráð hefur óskað eftir umsögn á.
Frístunda- og menningarnefnd hefur haft til skoðunar þrjú erindi frá bæjarráði er lýtur að íþróttastarfi í Grindavík.
- Að skoða hvernig íþróttaiðkun 16-18 ára ungmenna er háttað í Grindavík. Sérstaklega skal skoða hvernig þetta starf er fjármagnað og hvort mikið brottfall sé eftir að stuðningi bæjarins við íþróttastarfið er hætt.
- Að skoða hvort tilefni sé til að vera með sérstaka frístundastyrki fyrir þau börn og ungmenni sem stunda eingöngu skipulagðar frístundir utan Grindavíkur og njóta þar af leiðandi ekki góðs af niðurgreiðslu Grindavíkurbæjar til íþrótta- og tónlistarnáms í Grindavík.
- Að undirbúa tillögu um stuðning Grindavíkurbæjar við innra starf og afreksstarf UMFG, þannig að tillaga liggi fyrir bæjarstjórnarfundi í nóvember. Í því ljósi verði litið til umræðu og niðurstöðu frá stefnumótunarfundi um íþróttamál sem haldinn var 8. apríl 2013.
Lögð er fram ítarleg greinargerð Helenu Bj. Bjarnadóttur formanns nefndarinnar og Kristins J. Reimarssonar sviðsstjóra sem hafa unnið þetta mál fyrir hönd nefndarinnar.
Í ljósi þess er fram kemur í greinargerðinni leggur frístunda- og menningarnefnd til við bæjarráð að fyrir árið 2014 verði UMFG veittur styrkur að upphæð 10.000.000 kr. sem skiptist þannig;
- 2.000.000 kr. til að koma til móts við útgjöld deilda vegna 16 - 18 ára starfs. Aðalstjórn UMFG kemur sér saman um skiptingu fjármagns á milli deilda.
- 2.000.000 kr. til að koma á samræmdu bókhaldi á milli deilda.
- 6.000.000 kr. til að koma til móts við afreksstarf. Aðalstjórn UMFG mótar reglur um skiptingu fjármagns á milli deilda.
Frístunda- og menningarnefnda þakkar Helenu og Kristni fyrir góða greinargerð.7. Aðgerðaráætlun um stefnumótun í íþróttamálum 2011 - 2015
Aðgerðaráætlun unnin af fulltrúum Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands.
Lagt fram til kynningar.
8. Fundadagatal Grindavíkurbæjar 2013-2014
Lagt fram til kynningar.
9. Fundargerðir forvarnarteymis Grindavíkur
Fundargerðir forvarnarteymis frá 7. október og 4. nóvember lagðar fram til kynningar.
Fundargerðir forvarnarteymis frá 7. október og 4. nóvember lagðar fram til kynningar.
10. Fundargerðir bygginganefndar íþróttamannvirkja.
Fundargerðir nr. 15 og 16 frá 15. og 23. október.
Fundargerðir bygginganefndar íþróttamannvirkja frá 15. og 23. október lagðar fram til kynningar.