Frístunda- og menningarnefnd - 25. fundur
- 02.10.2013
- Fundargerð
- Kl. 20:00 - 21:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 25
- Ritari: Kristinn Reimarsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttiraðalmaður
- Helga Kristjánsdóttiraðalmaður
- Lovísa H Larsenaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaramaður
- Kristinn Jakob Reimarssonembættismaður
1. Frístunda- og menningarsvið. Fjárhagsáætlun 2014.
Fjárhagsáætlun frístunda- og menningarsviðs fyrir árið 2014.
Undir þessum lið komu á fundinn Margrét R. Gísladóttir forstöðumaður Bókasafns Grindavíkur og Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja. Lagðar voru fram tillögur forstöðumanna að fjárhagsáætlun annars vegar fyrir bókasafnið og hins vegar fyrir íþróttamannvirki og tillögur að breytingu á gjaldskrám fyrir árið 2014.
Er varðar rekstur íþróttamannvirkja: Forstöðumaður leggur til 4 - 5% hækkun á gjaldskrám. Óskað er eftir að bætt verði við tveimur stöðugildum í lok árs 2014 þegar áfangi 2 við Íþróttamiðstöð Grindavíkur verður tekin í gagnið.
Nefndin samþykkir tillögur forstöðumanns að gjaldskrárhækkunum og leggur til við bæjarráð að það verði samþykkt. Er varðar beiðni um fjölgun stöðugilda þá samþykkir nefndin að bætt verði við einu stöðugildi til að uppfylla kröfur reglna um öryggi á sundstöðum. Lagt er til að afgreiðslu á beiðni um hitt stöðugildið verið skoðað í tengslum við fjárhagsáætlun ársins 2015.
Er varðar rekstur bókasafns: Lagt er til að árgjald verði fellt niður og örlítil hækkun á öðrum liðum gjaldskrár. Lögð er til hækkun á stöðugildum núverandi starfsmanna í tengslum við sameiningu bókasafnanna í ágúst 2014 þannig að við safnið verði tvö stöðugildi frá 1. júní.
Nefndin leggur til við bæjarráð að árgjald verði 1.400 kr. en aldur þeirra sem fá fríkort verði hækkaður í 18 ár. Nefndin telur ekki tímabært að hækka stöðugildi starfsmanna.
Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs lagði fram fjárhagsáætlun fyrir Félagsmiðstöðina Þrumuna, starfsemi Vinnuskóla Grindavíkur og aðra liði er heyra undir frístunda- og menningarsvið.
Er lýtur að rekstri vinnuskólans er lagt til að laun nemenda verði sem hér segir:
17 ára: 1.213 kr. með orlofi.
16 ára: 740 kr. með orlofi.
15 ára: 592 kr. með orlofi.
14 ára: 518 kr. með orlofi.
Lögð er til fjölgun á vinnustundum hjá 14 og 15 ára unglingum. 14 ára fái 109 klst. í stað 67 klst. 15 ára ungmenni fái 162 klst. í stað 117. 16 ára fái 222 klst. sem er tveimur tímum færra en í sumar og 17 ára fái 239 klst. sem er 11 stundum færra en í sumar. Þessar tillögur gera ekki ráð fyrir heildarhækkun á launalið Vinnuskólans og leggur nefndin til að þessar tillögur verði samþykktar.
Lögð er til 3 - 5% hækkun á gjaldskrá leikjanámskeiða. Heill dagur á leikjanámskeiði verði 10.500 kr. og hálfur dagur 6.800 kr. Jafnframt er lagt til að aftur verði boðið upp á leiklistarnámskeið sem hluta af frístundaframboði sumarið 2014 líkt og gert var í sumar og heppnaðist vel.
Nefndin samþykkir tillögur um fyrirkomulag vinnuskólans þ.m.t. laun og tímafjölda. Jafnframt eru samþykktar tillögur um hækkun gjaldskrár á leikjanámskeiðum og leggur nefndin til við bæjarráð að þær verði samþykktar.2. Málefni bókasafns
Farið yfir teikningar af nýju bókasafni. Lögð fram tillaga að skipulagi bókasafnsins til framtíðar.
Margrét R. Gísladóttir forstöðumaður bókasafnsins sýndi nýjar teikningar frá Eigil Rossen af uppröðun innréttinga í nýju safni. Nefndin fagnar þessum tillögum en telur að rými sé ekki að nýtast nógu vel.
Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs lagði fram tillögur í nokkrum liðum að skipulagi bókasafnsins til framtíðar. Meðal annars er lagt er til að sameiginlegt bókasafn hljóti heitið Bókasafn Grindavíkur og safnið falli undir verksvið frístunda- og menningarnefndar. Lagt er til að bókakostur verði sameinaður í safni en haldið aðskildum í skráningu. Lagt er til að opnunartími safnsins verið frá 08:00 - 18:00 og til að byrja með verði ávallt tveir starfsmenn á vakt sem þýðir 2.5 stöðugildi.
Nefndin fagnar framkomnum tillögum og leggur til við bæjarráð að þær verði samþykktar.3. 40 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Skipa þarf afmælisnefnd.
Grindvíkurbær fagnar 40 ára kaupstaðarafmæli á næsta ári. Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að skipuð verði sérstök afmælisnefnd hið fyrsta sem verði skipuð með eftirtöldum hætti: Fulltrúi úr frístunda- og menningarnefnd sem jafnframt yrði formaður, fulltrúi frá félagi eldri borgara, fulltrúi frá ungmennaráði, fulltrúi atvinnulífsins og einn bæjarfulltrúi. Starfsmaður nefndarinnar yrði sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. Í fjárhagsáætlun er lagt til að settar verði 3.000.000 kr. í afmælishátíðina.
Nefndin tilnefnir Jónu Rut Jónsdóttur sem fulltrúa nefndarinnar.4. Fundargerðir forvarnarteymis Grindavíkur
Fundargerð forvarnarteymis frá 10. september sl. lögð fram til kynningar.