Frístunda- og menningarnefnd - 16. fundur
- 05.12.2012
- Fundargerð
- Kl. 20:00 - 21:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 16
- Ritari: Kristinn Reimarsson
Nefndarmenn
- Helena Bjarndís Bjarnadóttirformaður
- Lovísa H Larsenaðalmaður
- Unnar Á Magnússonaðalmaður
- Jóna Rut Jónsdóttiraðalmaður
- Helga Kristjánsdóttiraðalmaður
- Kristinn Jakob Reimarssonembættismaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
1. Nýtt deiliskipulag fyrir íþróttasvæðið í Grindavík
Skipulags- og umhverfisnefnd hefur vísað tillögu að deiliskipulagi íþróttasvæðisins til umsagnar frístunda- og menningarnefndar. Jafnframt bókaði skipulags- og umhverfisnefnd að fulltrúar UMFG yrðu boðaðir á fund frístunda- og menningarnefndar til að fara yfir tillögu að deiliskipulagi íþróttasvæðisins. Mánudaginn 3. desember var haldinn fundur þar sem fulltrúar deilda UMFG fengu bæði kynningu á deiliskipulaginu og teikningum að áfanga 2 í uppbyggingu á íþróttasvæðinu. Ein athugasemd v/ deiliskipulagstillögunar barst frá Knattspyrnudeild UMFG. Óskar deildin eftir að íþróttamannvirki tengd knattspyrnu verði sett inn í deiliskipulag við Hópið og stúku við aðalvöll. Ennfremur að svæði sunnan, vestan og norðan við aðalvöll verði skipulagt sem áhorfendasvæði. Ennfremur óskar deildin eftir því að gert verði ráð fyrir gervigrasvelli í fullri stærð á svæðinu.
Frístunda- og menningarnefnd bendir á að í þessari tillögu sé gert ráð fyrir byggingareit á milli stúkunnar og Hópsins og jafnframt er gert ráð fyrir stúkubyggingu sunnan við aðalvöll og ekki sé þörf á meira svæði undir áhorfendasvæði. Nefndin tekur jafnframt undir að til lengri tíma litið verði gert ráð fyrir gervigrasvelli.
Nefndin vill einnig koma því á framfæri að gert verði ráð fyrir aðstöðu fyrir jaðaríþróttir líkt og BMX-hjól og brettaíþróttir.2. Skipulag sundlaugarsvæðis við íþróttamiðstöð Grindavíkur
Farið yfir niðurstöður vefkönnunar um hug bæjarbúa gagnvart inni- eða útisundlaug til framtíðar í Grindavík og jafnframt greinargerðir sem bárust frá Sunddeild UMFG og Grunnskóla Grindavíkur. Fulltrúar nefndarinnar hafa farið og kynnt sér sundlaugarsvæði í Kópavogi, Garðabæ og Mosfellsbæ og er verið að vinna upplýsingar um kostnaðarmat á byggingu innisundlaugar ásamt grófri kostnaðaráætlun. Skýrslu verður skilað fyrir 17. desember.
3. Ungmennaþing
Farið yfir umræðupunkta sem komu fram á ungmennaþingi sem haldið var í Hópsskóla 22. nóvember sl. Þar kom m.a. fram hjá þeim ungmennum sem mættu að þetta fyrirkomulag að boða til svona ungmennaþings og halda slík ungmennaþing 3 - 4 sinnum á ári væri sniðugra fyrirkomulag heldur en að skipa sérstakt 5 - 7 manna ráð. Með þessu væri verið að fara úr fulltrúalýðræði yfir í beint lýðræði eða þátttökulýðræði. Með þessu fyrirkomulagi hafa allir möguleika á því að koma hugmyndum sínum á framfæri og hafa áhrif á málefni sveitarfélagsins. Ábyrgðin dreifist á fleiri aðila og fleiri koma að starfi ungmennaráðs.
Nefndin þakkar þeim sem mættu á þingið fyrir þátttökuna og góðar og gagnlegar ábendingar. Ábendingum sem snúa að starfsemi bæjarins hefur verið komið á framfæri við viðkomandi forstöðumenn og hefur sumum þeirra, líkt og það að sjúkrakassa vantaði í Hópið verið kippt í liðinn. Nefndin leggur til við bæjarráð að erindisbréfi ungmennaráðs verði breytt í samræmi við það sem ofan greinir og jafnframt leggur nefndin til að ein að þeim hugmyndum sem komu fram á fundinum, að "brattabrekka" verði upplýst, verði hrint í framkvæmd.4. Íþróttamaður og íþróttakona ársins 2012
Kjör á íþróttmanni og íþróttakonu ársins 2012 verður lýst að venju á Gamlársdag kl. 13:00. Athöfnin mun fara fram í Hópsskóla. Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs falið að kalla eftir tilnefningum frá þeim aðilum sem eiga rétt á því að tilnefna aðila í kjörið.
Samkvæmt verklagsreglum um kjör á íþróttmanni og íþróttakonu Grindavíkur má frístunda- og menningarnefnd tilnefna íþróttamann/konu sem er með lögheimili í Grindavík og hefur skarað framúr í íþróttum sem ekki eru stundaðar í Grindavík í kjörið. M.t.t. þessa tilnefnir nefndin Christine Buchholz til kjörs á íþróttakonu Grindavíkur.5. Þrettándagleði 2013
Sviðsstjóra falið að hefja undirbúning að hátíðinni og hafa hana með svipuðu sniði og 2012.
6. Beiðni um nafnabreytingu á íþróttahúsinu
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur óskar eftir því að deildin fái heimild til að "selja" íþróttahúsið styrktaraðila deildarinnar, hugsanlega til 2 - 3 ára. Myndi þá íþróttahúsið bera heiti styrktaraðilans sbr. DHL-höllinn í Frostaskjóli, Vodafonehöllin hjá Val o.s.frv. Nefndin óskar eftir frekari upplýsingum og felur sviðstjóra að óska eftir þeim út frá umræðum á fundinum.
7. Fundargerðir forvarnarteymis Grindavíkur
Fundargerð frá 7. nóvember lögð fram.