Frístunda- og menningarnefnd - 56. fundur
- 04.10.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 56
- Ritari: Þorsteinn Gunnarsson
Nefndarmenn
- Atli Geir Júlíussonaðalmaður
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Þórunn Alda Gylfadóttirformaður
- Ágústa Inga Sigurgeirsdóttiraðalmaður
- Anita Björk Sveinsdóttiraðalmaður
- Þorsteinn Gunnarssonembættismaður
1. Fjárhagsáætlun 2017-2020: Grindavíkurbær og stofnanir
Drög að fjárhagsáætlun frístunda- og menningarsviðs fyrir árið 2017 lögð fram.
2. Heilsu- og forvarnarvika: 3.-9. okt. 2016
Dagskrá Heilsu- og forvarnarvikunnar 3.-9. október lögð fram.
3. Hestamannafélagið Brimfaxi: Uppbygging reiðvegakerfis
Sviðsstjóri fór yfir stöðu mála.
4. Íþrótta- og afrekssjóður: Endurskoðun á reglugerð og vinnureglum
Í framhaldi af síðasta fundi samþykkir nefndin breytingar á 1. grein á reglugerð vinnureglum Íþrótta- og afrekssjóðs að upphæðir verði tvöfaldaðar í ljósi þess að vinnureglurnar hafa verið óbreytt síðan 2012. Þá voru samþykktar minniháttar breytingar á reglugerð Íþrótta- og afrekssjóðs.
5. Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur: Bókaútgáfa um Guðberg Bergsson
Í tilefni þess að Guðbergur Bergsson, heiðursborgari Grindavíkur, var sæmdur doktorsnafnbót í heiðursskyni við Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda hinn 1. júní 2013, var efnt til málþings í Hátíðarsal Háskóla Íslands undir yfirskriftinni Heiman og heim. Á málþinginu var varpað ljósi á verk Guðbergs í alþjóðlegu og íslensku samhengi og þótti málþingið takast með eindæmum vel. Að Guðbergsþingi stóðu Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Íslenskudeild Mani-tobaháskóla, Grindavíkurbær, Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO, Forlagið, Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands, og Hugvísinda-stofnun Háskóla Íslands.
Oft hefur verið vísað til málþingsins og haft á orði, hve miklu máli það mundi skipta að efni erindanna yrði gefið út í bókarformi. Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur hefur hug á að bregðast við þeirri áskorun með því að ráðast í útgáfu á greinasafni á íslensku og ensku í ritstjórn Birnu Bjarnadóttur. Stofnunin leitar til Grindavíkurbæjar og helstu fyrirtækja bæjarins um fjárstuðning. Nefndin tekur jákvætt í erindið og vísar til gerðar fjárhagsáætlunar og bæjarráðs.6. Sparkvellir: Gúmmíkurl
Framkvæmdum við sparkvellina tvo við Grunnskóla Grindavíkur er lokið og tókst vel.
Í Grindavík eru tveir sparkvellir með úrgangsdekkjakurli sem læknar hafa varað við, annar völlurinn er frá árinu 2006 og hinn 2010. Grindavíkurbær ákvað við gerð fjárhagsáætlunar í fyrra að vera til fyrirmyndar og leyfa börnunum að njóta vafans og skipta gúmmíkurlinu út í ár, sem er í samræmi við beiðni stjórnar Heimilis og skóla og ályktun umboðsmanns barna og Læknafélags Íslands. Í sumar var skipt verður bæði um gervigras og gúmmíkurl á eldri vellinum. Á nýrri vellinum var dekkjakurlið ryksugað burt og gúmmí af viðurkenndri gerð sett í staðinn, þ.e. ljóst að lit og án efna sem teljast skaðleg heilsu eða mengandi. Er það í samræmi við samþykkt stjórnar KSÍ frá því í fyrrahaust.
Nefndin fagnar því að börnin í Grindavík hafi fengið að njóta vafans.7. Forvarnarteymi: Fundargerðir
Fundargerðin lögð fram.
8. Fundargerðir Ungmennaráðs
Fundargerðin lögð fram.
9. Samsuð: Fundargerðir
Fundargerðin lögð fram.