Frístunda- og menningarnefnd - 31. fundur
- 02.04.2014
- Fundargerð
- Kl. 20:00 - 20:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 31
- Ritari: Þorsteinn Gunnarsson
Nefndarmenn
- Helena Bjarndís Bjarnadóttirformaður
- Unnar Á Magnússonaðalmaður
- Jóna Rut Jónsdóttiraðalmaður
- Lovísa H Larsenaðalmaður
- Magnús Andri Hjaltasonaðalmaður
- Gunnlaugur Jón Hreinssonáheyrnarfulltrúi UMFG
- Þorsteinn Gunnarssonembættismaður
1. Stefnumótunarvinna um íþróttamál í Grindavík
Lokaútgáfa í viðhengi. Var send til nefndarmanna og bæjarráðs, ein athugasemd barst sem síðan var dregin til baka.
Sviðsstjóri hefur fundað með UMFG og bæjarráði og í kjölfarið lagt fram drög að samstarfssamningi. Nefndin samþykkir samstarfssamninginn sem felur í sér 10 milljón króna framlag bæjarins til afreksstarfs UMFG.
2. Tillögur Ungmennaráðs Grindavíkur til bæjarstjórnar 2014
Tillögurnar verða lagðar fyrir hátíðarfund bæjarstjórnar 10. apríl nk.
Nefndinni líst vel á tillögur ungmennaráðsins og fagnar flottum og frumlegum hugmyndum.
3. Menningarvika 2014
Nefndin er gríðarlega ánægð með hvernig til tókst með Menningarvikuna í ár sem var stórglæsileg og Grindavíkurbæ til mikils sóma. Nefndin vill þakka sviðsstjóra fyrir vel unnin störf.
4. Endurskoðun jafnréttisáætlunar Grindavíkurbæjar
Nefndin samþykkir framkomnar tillögur.
5. 40 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Lokadagskrá afmælisnefndar vegna 40 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkurbæjar þann 10. apríl nk. lögð fram.
6. Sjóarinn síkáti 2014
Framkvæmd hátíðarhaldanna rædd. Undirbúningur er hafinn og eru Grindvíkingar hvattir til að taka virkan þátt í hátíðinni. Ábendingar um dagskrárliði er hægt að senda á sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs á netfangið thorsteinng@grindavik.is Frestur til að skila inn upplýsinga sem fara í prentaða dagskrá er til 10. maí.
7. 17. júní 2014
Frístunda- og menningarnefnd samþykkir að auglýsa eftir framkvæmdaraðila.
8. Vinnuskóli 2014
Farið yfir tillögu sviðsstjóra um vinnufyrirkomlag Vinnuskóla Grindavíkur sumarið 2014. Nefndin samþykkir framkomnar tillögur sem tekur mið af fjárhagsáætlun. Nefndin tekur undir tillögu ungmennaráðs um að aukið fjármagn verði lagt til Vinnuskólans til að auka vinnu ungmenna í bænum í sumar.
9. Úttekt á frístundastarfi í Grindavík
Sigríður Etna sem er að skrifa lokaritgerð í BA námi í tómstundafræði var í starfsnámi í Grindavík. Að beiðni sviðsstjóra var hún beðin að gera úttekt á tómstundastarfi í Grindavík.
Sigríður Etna Marinósdóttir sem er að ljúka BA í tómstundafræði var í starfsnámi í Grindavík. Að beiðni sviðsstjóra var hún beðin að gera úttekt á tómstundastarfi í Grindavík. Nefndin telur að úttektin hafi verið þörf og felur sviðsstjóra að vinna að stefnumótun Grindavíkurbæjar í frístundamálum til næstu ára í samvinnu við nefndina, ungmennaráð, nemendaráð, Miðgarð og Sambýli.
10. Samningur við UMFG um eflingu íþróttastarfs barna og ungmenna.
Íþróttanámskrár UMFG sem sem bókað var um á síðasta fundi eru komnar.
UMFG hefur skilað inn námskrám fyrir aðalstjórn og allar deildar félagsins. Nefndin fagnar því og felur sviðsstjóra að klára vinnuna í samvinnu við stjórn UMFG.
11. Fundargerðir forvarnarteymis Grindavíkur
Fundargerðin lögð fram.
12. Sögu- og minjafélag Grindavíkur óskar eftir styrk
Erindið lagt fram.