Frístunda- og menningarnefnd - 19. fundur
- 06.03.2013
- Fundargerð
- Kl. 20:00 - 21:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 19
- Ritari: Kristinn Reimarsson
Nefndarmenn
- Helena Bjarndís Bjarnadóttirformaður
- Lovísa H Larsenaðalmaður
- Unnar Á Magnússonaðalmaður
- Jóna Rut Jónsdóttiraðalmaður
- Helga Kristjánsdóttiraðalmaður
- Kristinn Jakob Reimarssonembættismaður
Sigurður Enoksson fulltrúi UMFG sat fundinn undir liðum 3, 8, 9 og 13.
1. Málefni bókasafns
Ársskýrsla bókasafnsins fyrir árið 2012 lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd þakkar forstöðumanni greinargóða skýrslu.
2. Menningarlandið 2013 - framkvæmd og framtíð menningarsamninga
Ráðstefna á vegum Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Menningarlandið 2013 - framkvæmd og framtíð menningarsamninga, verður haldin á Kirkjubæjarklaustri 11. - 12. apríl n.k. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sækir ráðstefnuna.
3. Samningur aðalstjórnar UMFG
Samningur á milli Grindavíkurbæjar og Aðalstjórnar UMFG um rekstur aðalstjórnar rann út um sl. áramót. Aðalstjórn hefur óskað eftir endurnýjun á samningum. Nefndin samþykkir að samningurinn verði framlengdur óbreyttur til 31. maí 2013 líkt og gert var við samninginn við UMFG um eflingu íþróttastarfs.
4. Óskað er eftir aðstöðu fyrir pool-borð
Félag eldri borgara í Grindavík óskar eftir aðstoð Frístunda- og menningarnefndar í að finna húsnæði undir pool-borð sem félagið keypti fyrir félagsmenn og hafði hugsað sér í notkun í Miðgarði/Víðihlíð. Sviðsstjóra falið að ræða við forstöðumann Víðihlíðar um lausn á þessu máli.
5. Menningarvika 2013
Lokadagskrá menningarviku lögð fram til kynningar.
6. Menningarverðlaun 2013
Tvær tilnefningar til menningarverðlauna hafa borist. Nefndin samþykkir að Einar Lárusson fái menningarverðlaun Grindavíkur 2013 fyrir menningar- og listastarf í þágu samfélagsins í Grindavík.
7. Sumarnámskeið fyrir börn og ungmenni. Leiklistarnámskeið
Tekið fyrir erindi Ásgríms Logasonar og Júlíönu Gunnarsdóttur þar sem þau bjóða Grindavíkurbæ að koma með leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga í tvær vikur sumarið 2013. Nefndin fagnar þessu erindi og felur sviðsstjóra að útfæra hugmyndina frekar.
8. Umsóknir óskast um að halda 28. Landsmót UMFÍ árið 2017 og 29. Landsmót UMFÍ árið 2021 og að halda 5. Landsmót UMFÍ 50+ árið 2015.
Bréf Ungmennafélags Íslands þar sem óskað eftir umsóknum frá sambandsaðilum og sveitarstjórnum um að taka að sér undirbúning og framkvæmd 19. Unglingalandsmóts UMFÍ 2016, 5. Landsmóts UMFÍ 50+ 2015, 28. Landsmóts UMFÍ 2017 og 29. Landsmóts UMFÍ 2021. Frístunda-og menningarnefnd hvetur aðalstjórn UMFG til að skoða vel hvort ekki sé hægt að sækja um framkvæmd á Landsmóti UMFÍ fyrir 50 ára og eldri á næstu árum.
9. Ársskýrsla knattspyrnudeildar UMFG 2012.
Ársskýrsla knattspyrnudeildar UMFG fyrir árið 2012 lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd þakkar góða og vel framsetta skýrslu.
10. Saman hópurinn óskar eftir fjárstuðning við forvarnarverkefni félagsins
SAMAN-hópurinn er samstarfsvettvangur frjálsra félagasamtaka, stofnana og sveitarfélaga sem láta sig varða forvarnir og velferð barna. Óskar hópurinn eftir fjárstuðningi frá Grindavíkurbæ til að styrkja forvarnarstarf hópsins. Frístunda- og menningarnefnd telur það jákvætt ef Grindavíkurbær getur styrkt starfsemi SAMAN-hópsins en leggur á það áherslu að þeir peningar verði ekki teknir af fjármunum sem þegar er búið að setja í forvarnarstarf í Grindavík. Frístunda- og menningarnefnd hvetur jafnframt til þess að Grindavíkurbær gerist aðili að SAMAN-hópnum með það að markmiði að efla tengslanet og aðgengi að fræðsluefni til forvarna.
11. Ungt fólk og lýðræði
Ungmennafélag Íslands hefur boðað til ráðstefnu Ungt fólk og lýðræði sem haldin verður á Egilsstöðum 20. - 22. mars n.k. Meginumræðuefnið verður þátttaka ungs fólks í skipulagsmálum. Nefndin samþykkir að senda tvo fulltrúa á ráðstefnuna.
12. Fundargerðir forvarnarteymis Grindavíkur
Fundargerðir forvarnarteymis Grindavíkur frá 16. janúar og 6. febrúar sl. lagðar fram.
13. Fundargerðir bygginganefndar íþróttamannvirkja.
Fundargerðir byggingarnefndar íþróttamannvirkja nr. 6, 7, 8 og 9 lagðar fram til kynningar. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kynnti fyrirhugað kynningarmyndband af áfanga 2.
14. 31.fundur haldinn í Menningarráði Suðurnesja.
Fundargerð lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hvetur stofnanir, félagasamtök og einstaklinga til að sækja um styrki í Menningarráð Suðurnesja. Umsóknarfrestur rennur út 11. mars n.k.
15. 30.fundur Menningarráðs Suðurnesja.
Fundargerð lögð fram.
16. 29.fundur Menningarráðs Suðurnesja.
Fundargerð lögð fram.