Frístunda- og menningarnefnd - 62. fundur
- 05.04.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 62
- Ritari: Björg Erlingsdóttir
Nefndarmenn
- Atli Geir Júlíussonaðalmaður
- Þórunn Alda Gylfadóttirformaður
- Ágústa Inga Sigurgeirsdóttiraðalmaður
- Sigríður Gunnarsdóttirvaramaður
- Björg Erlingsdóttirsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
- Kristín María Birgisdóttirvaramaður
1. Samstarfssamnngur á milli Grindavíkurbæjar og Grindavíkurkirkju 2017-2020
Nýr samningur samþykktur
2. Strandminjar, samstarfsverkefni Grindavíkurbæjar, Minja- og sögufélags og félags um strandminjar
Verkefnið og fjárhagsáætlun samþykkt af hálfu nefndarinnar. Sviðsstjóra falið að sækja um fjármögnun til bæjarráðs fyrir þátt Grindavikurbæjar í verkefninu.
3. Gestshús: ósk um flutning og eða nýtingu
Lagt til að sótt verði um fjárveitingu til úttektar á stöðu hússins og áætlanir um framtíð hússins tilbúnar fyrir vinnu fjárhagsáætlunar ársins 2018
4. Tjaldsvæði: 2017
Sviðsstjór kynnir áætlun um að tjalsvæðið opni miðjan apríl með morgunopnun, þrifum og gæslu hálfan daginn og opni svo sumaropnun 1. maí.
5. Knattspyrnudeild UMFG: beiðni um framlengingu samnings um verktöku við umsjón mannvirkja 2017
Niðurstaða af fundi bæjarráðs kynnt
6. Víðavangshlaup 2017: 25. maí
Víðavangshlaupið verður í lok maí og nefndin bendir á að tengja hlaupið við Hreyfiviku.
7. Sjóarinn síkáti 2017: verkefnisáætlun 2017
Hverfaskipting rædd og stungið uppá að skoðanakönnun um hverfaskiptingu og þátttöku hverfa á Sjóaranum síkáta. Sviðsstjóra falið að vinna könnun og setja á heimasíðu Grindavíkurbæjar.
8. Frístunda- og menningarsvið: Menningarvika 2017
Sviðsstjóri segir frá vikunni. Nefndin sammála um að Menningarvikan hafi gengið vel og framboð viðburða gott.
9. Fundargerðir: Kvikan 2017
Áætlanir kynntar