Frístunda- og menningarnefnd - 54. fundur
- 01.06.2016
- Fundargerð
- Kl. 20:00 - 21:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 54
- Ritari: Þorsteinn Gunnarsson
Nefndarmenn
- Atli Geir Júlíussonaðalmaður
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Anita Björk Sveinsdóttiraðalmaður
- Kristín María Birgisdóttiraðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Þorsteinn Gunnarssonembættismaður
1. Íþróttamiðstöð: aukin sumaropnun um helgar
Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamiðstöðvar mætti á fundinn undir þessum lið. Bæjarstjórn hefur samþykkt að veita fjárheimild til að auka opnunartíma sundlaugar og líkamsræktarstöðvar. Nefndin samþykkir eftirfarandi:
Opið klukkustund lengur á föstudögum eða til kl. 21:00.
Opið laugardag og sunnudag frá kl. 09:00-18:00 í júní, júlí og ágúst.
Jafnframt verður skoðað að lengja helgaropnun næsta vetur.2. Íþróttamiðstöð: Sauna
Nýtt sauna verður sett á sundlaugarsvæðið í sumar. Um er að ræða 7,5fm smáhýsi sem búið er að breyta í sauna. Það tekur um 10-15 manns. Nefndin fagnar því að sauna skuli koma í sundlaugina eftir langt hlé.
3. Umsókn í afrekssjóð: Alexander Birgir Björnsson
Í samræmi við 4. grein vinnureglna íþrótta- og afrekssjóðs samþykkir nefndin umsóknina.
4. Umsókn í Afrekssjóð: Viktoría Líf Steinþórsdóttir
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs
5. Áhorfendastúka: Galli í þakklæðningu
Samkomulag hefur náðst við verktaka um uppgjör vegna galla á áhorfendastúku á Grindavíkurvelli.
6. Rannsókn og greining: Lýðheilsa ungs fólks í Grindavík 2016
Farið yfir nýja skýrslu Rannsóknar og greiningar um hagi og líðan unglinga í 8.-10. bekk. Skýrslan hefur verið kynnt fyrir forvarnarteymi og verður einnig kynnt fyrir Grunnskóla Grindavíkur.
7. Sjóarinn síkáti: Verkefnisáætlun 2016
Sviðsstjóri fór yfir lokasprettinn á skipulagi Sjóarans síkáta 3.-5. júní n.k. Dagskráin er glæsileg í tilefni 20 ára afmæli Sjóarans síkáta og 60 ára afmæli Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur.
8. Jónsmessuganga: Dagskrá 25. júní 2016
Dagskráin lögð fram.
9. Forvarnarteymi: Fundargerðir
Fundargerðin lögð fram.
10. Samsuð: Fundargerðir
Fundargerðin lögð fram.