Frístunda- og menningarnefnd - 42. fundur
- 25.03.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 42
- Ritari: Þorsteinn Gunnarsson
Nefndarmenn
- Atli Geir Júlíussonaðalmaður
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Lovísa H Larsenformaður
- Þorsteinn Gunnarssonembættismaður
- Gunnlaugur Jón Hreinssonáheyrnarfulltrúi UMFG
- Kristín María Birgisdóttiraðalmaður
- Björgvin Vilmundarsonaðalmaður
1. Austurvegur 1: umsókn um byggingarleyfi áfangi 2
Nýja íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar verður tekið í notkun laugardaginn 11. apríl næstkomandi. Afgreiðsla fyrir sundlaugina og íþróttahúsið færist á einn stað, í nýja mannvirkið. Þar eru einnig búningsklefar fyrir sundlaugina og íþróttahúsið. Um leið verður líkamsræktarstöðinni í gömlu sundlauginni lokað næstu fjórar til sex vikurnar vegna stækkunar á líkamsræktaraðstöðunni en þær framkvæmdir eru á vegum Gym heilsu.
Sundlaugin verður lokuð föstudaginn 10. apríl vegna flutninga á afgreiðslunni í nýja mannvirkið en starfsemi íþróttahússins verður óbreytt þann dag.
Aðalinngangur nýja íþróttamannvirkisins er sunnan megin, þ.e. við Austurveg. Búið er að hanna torg við íþróttamiðstöðina en farið verður í þær framkvæmdir með vorinu og verður torgið væntanlega tilbúið í ágúst og er þá stefnt að formlegri vígslu hússins. Meginmarkmið hönnunar á torginu er að skapa aðlaðandi og fjölnota aðkomu að nýrri íþróttamiðstöð Grindavíkur.
Aðalinngangur í nýja félags- og skrifstofuaðstöðu UMFG og Kvenfélags Grindavíkur verður í suðaustur horni byggingarinnar við Austurveg.
Nefndin fagnar því að þetta glæsilega mannvirki skuli loks vera tekið í gagnið.2. Knattspyrnudeild UMFG: Ársskýrsla 2014
Ársskýrslan lögð fram.
3. Golfklúbbur Grindavíkur: Endurnýjun samstarfssamnings
Grindavíkurbær er með tvo samninga við GG, annars vegar um barna- og unglingastarf og hins vegar um rekstur valla. Þeir renna út í árslok. GG hefur falast eftir endurnýjun á samningunum. Í samræmi við Íþróttastefnu Grindavíkur er samþykkt að skoða einn heildarsamning við GG. Sviðsstjóra og formanni nefndarinnar falið að ræða við GG í samræmi við umræður á fundinum.
4. Hestamannafélagið Brimfaxi: Barna- og unglingastarf
Grindavíkurbær var með samning við Brimfaxa vegna fasteignagjalda sem rann út um síðustu áramót. Brimfaxi er farið af stað með barna- og unglingastarf og hefur óskað eftir stuðningi frá Grindavíkurbæ. Í samræmi við Íþróttastefnu Grindavíkur er samþykkt að skoða einn heildarsamning við Brimfaxa. Sviðsstjóra og Atla Geir falið að ræða við Brimfaxa í samræmi við umræður á fundinum.
5. Menningarvika 2015
Menningarvika Grindavíkurbæjar 2015 verður 14.-22. mars
Menningarvikan í ár tókst vel og er lauslega áætlað að gestir á viðburðum hafi verið um þrjú þúsund og viðburðir um eitt hundrað. Nefndin vill þakka sviðsstjóra fyrir vel heppnaða Menningarviku.
6. Sjóarinn síkáti: 2015
Framkvæmd hátíðarhaldanna rædd og verkefnisáætlun lögð fram. Undirbúningur er hafinn og eru Grindvíkingar hvattir til að taka virkan þátt í hátíðinni. Ábendingar um dagskrárliði er hægt að senda á sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs á netfangið thorsteinng@grindavik.is Frestur til að skila inn upplýsingum sem fara í prentaða dagskrá er til 10. maí.
7. 17. júní: Hátíðarhöld 2015
Samþykkt að Grindavíkurbæ sjái um hátíðarhöldin í ár.
8. Æskulýðsvettvangurinn: Umræðuvettvangur fyrir ungmenni í Grindavík
Skýrslan lögð fram. Samþykkt að hún fari einnig fyrir fræðslunefnd, skólastjórnenda og ungmennaráðs til kynningar.
9. Vinnuskólinn: Skipulag 2015
Farið yfir tillögu sviðsstjóra um vinnufyrirkomlag Vinnuskóla Grindavíkur sumarið 2015. Nefndin samþykkir framkomnar tillögur sem tekur mið af fjárhagsáætlun og vill að Ungmennaráð fái þær einnig til umsagnar.
10. Fundargerðir Ungmennaráðs
Fundargerðin lögð fram.
11. Forvarnarteymi: Fundargerðir
Fundargerðin lögð fram.