Frístunda- og menningarnefnd - 48. fundur
- 02.12.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 48
- Ritari: Þorsteinn Gunnarsson
Nefndarmenn
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Ágústa Inga Sigurgeirsdóttiraðalmaður
- Anita Björk Sveinsdóttiraðalmaður
- Þorsteinn Gunnarssonembættismaður
1. Frístunda- og menningarsvið: Starfsáætlun 2016
Sviðsstjóri lagði fram ítarlega starfsáætlun fyrir árið 2016. Hún verður jafnframt aðgengileg á heimasíðu bæjarins. Nefndin lýsir yfir mikill ánægju með upplýsandi og vel framsetta áætlun.
2. Íþróttamaður- og kona ársins: 2015
Verklagsreglurnar má sjá hér:$line$http://www.grindavik.is/gogn/2015/Verklagsreglur_Grindavik_uppfarsla_2015.pdf
Kjörið fer fram í Gjánni, nýrri félagsaðstöðu UMFG og kvenfélagsins kl. 13:00 á gamlársdag líkt og undanfarin ár. Verkefnisáætlun lögð fram og unnin. Sviðsstjóri kynnti nefndarmönnum reglugerðina um kjörið.
3. Knattspyrnudeild UMFG: beiðni um framlengingu samnings um verktöku við umsjón mannvirkja
Líflegar umræður um beiðni knattspyrnudeildar. Nefndin felur sviðsstjóra og bæjarstjóra að fara yfir málið og leggja fram tillögu fyrir bæjarráð.
4. Anna Eyjólfsdóttir: Þríeind 339
Anna Eyjólfsdóttir myndlistarmaður undirbýr útisýningu á listaverkum árin 2017-2019 og er Grindavík eitt þeirra bæjarfélaga sem hún er með í huga. Nefndin tekur jákvætt í erindið.
5. Frístunda- og menningarsvið: Menningarvika 2016
Opinn undirbúningsfundur fyrir Menningarvikuna á næsta ári var haldinn mánudaginn 23. nóv. s.l. og tókst vel. Fjölmargar skemmtilegar og áhugaverðar hugmyndir komu fram sem tengdust handverki í sem víðasta skilningi þess orðs. Handverksfélagið Greip vinnur að því að bjóða upp á námskeið og þá eru fleiri hugmyndir um námskeið í skoðun. Þá er þegar búið að bóka tónleika og myndlistasýningar þannig að Grindvíkingar hafa sannarlega tekið vel við sér.
6. Íþróttafélagið NES: Samstarfssamningur
Framhald af síðasta fundi. Samstarfssamningur við Íþróttafélagið Nes lagður fram þar sem félagið mun standa fyrir bocciaæfingum einu sinni í viku í Grindavík frá og með janúar næstkomandi. Nefndin samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.
7. Tendrun jólatrés 2015: Dagskrá
Kveikt verður á jólatrénu á Landsbankatúninu á laugardaginn kl. 18:00. Dagskrá og verkefnisáætlun lögð fram. Nefndin hvetur Grindvíkinga til þess að fjölmenna.
8. Þrettándagleði: 2016
Þrettándagleðin verður að vanda 6. janúar nk. Ýmsar hugmyndir um dagskrána ræddar. Verkefnisáætlun lögð fram.
9. Tjaldsvæðið: Skýrsla fyrir starfsárið 2015
Skýrsla um starfsemi tjaldsvæðisins sumarið 2015 lögð fram. Met aðsókn var á tjaldsvæðinu í Grindavík í sumar, frá miðjum maí og til loka september, bæði hvað varðar gesti og gistinætur. Aukningin á gistinóttum á milli ára er um 35% og aukning gesta um 34%. Alls komu 9120 gestir á tjaldsvæðið í sumar frá maí til september en gistinætur voru 10.449. Aukning bara í september var um helming.
10. Friðarganga: Verkefnisáætlun 2015
Hin árlega Friðarganga okkar Grindvíkinga verður fimmtudaginn 10. desember. Dagskrá og verkefnisáætlun lögð fram. Markmið göngunnar er að efla samkennd og samhug með því að að boða jákvæðni, gleði og kærleika í samfélaginu. Allir Grindvíkingar eru velkomnir að slást með í för.
11. Forvarnarteymi: Fundargerðir
Fundargerðin lögð fram.
12. Fundargerðir Ungmennaráðs
Fundargerðin lögð fram.