Frístunda- og menningarnefnd - 45. fundur
- 02.09.2015
- Fundargerð
- Kl. 20:00 - 21:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 45
- Ritari: Þorsteinn Gunnarsson
Nefndarmenn
- Atli Geir Júlíussonaðalmaður
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Ágústa Inga Sigurgeirsdóttiraðalmaður
- Þorsteinn Gunnarssonembættismaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Þórunn Alda Gylfadóttiraðalmaður
1. UMFG: Ársskýrsla 2014
Stjórn UMFG mætir á fundinn eins og kveðið er á um í samstarfssamningi en hún mætir einu sinni á ári. Farið yfir ársskýrslu UMFG, nýja samninginn, 20% starf íþróttafulltrúa, gerð æfingatafla og annað sem brennur stjórn UMFG og nefndarmönnum á brjósti. Búið að boða stjórnina á fundinn.
Stjórn UMFG mætti á fund nefndarinnar eins og kveðið er á um í samstarfssamningi, einu sinni á ári. Farið yfir ársskýrslu UMFG, nýjan samstarfssamning, 20% starf íþróttafulltrúa, gerð æfingataflna og ýmislegt fleira.
2. Fjárhagsáætlun 2016-2019: Grindavíkurbær og stofnanir
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs fór yfir tímaramma fjárhagsáætlunar og hvatti nefndarmenn til að huga vel að nýjum og ferskum hugmyndum fyrir komandi ár. Farið nánar yfir fjárhagsáætlun sviðsins á næsta fundi nefndarinnar.
3. Austurvegur 1: umsókn um byggingarleyfi áfangi 2
Sviðsstjóri fór yfir stöðu á framkvæmdum við aðalinngang á nýju íþróttamannvirki. Verklok voru áætluð 15. september en seinkar um 10 daga. Stefnt er að því að vígja mannvirkið formlega í kjölfar verklokanna og skrifa þá jafnframt undir samstarfssamninga við íþróttahreyfinguna. Einnig var farið yfir ýmis önnur mál sem snúa að íþróttamannvirkinu.
4. Samfélagssjóður Isavia: Úthlutun styrks vegna íþróttastarfs barna og unglinga
Lagt framt. Heildarupphæð styrks Isavia er 225.000 kr. og fer 150.000 kr. til UMFG og 75.000 kr. til Golfklúbbs Grindavíkur.
5. Handverksfélagið Greip: Stækkun á aðstöðu
Handverksfélagið Greip óskar eftir að fá stærri aðstöðu fyrir starfsemi sína en félagið hefur verið í helmingi húsnæðisins sem tilheyrði gömlu slökkviliðstöðinni á baklóð Grunnskóla Grindavíkur. Í hinum helmingi húsnæðisins hefur verið aðstaða fyrir unglingahljómsveitir og óskar Greip eftir því að fá þann hluta einnig undir starfsemi sína. Sviðsstjóri hefur farið yfir málið með skólastjórnendum, skólastjóra tónlistarskólans og þeim ungmennum sem hafa notað hljómsveitaraðstöðuna. Skólastjóri tónlistarskólans hefur boðið ungmennunum þá glæsilegu aðstöðu sem er í nýja tónlistarskólanum fyrir æfingar, til reynslu fyrst um sinn. Nefndin samþykkir að Handverksfélagið Greip fái hinn helming húsnæðisins einnig til afnota fyrir starfsemi sína og að gerður verði nýr samningur við félagið. Nefndin fagnar því að tónlistarskólinn nýtist einnig fyrir ungt og áhugasamt tónlistarfólk í Grindavík.
6. Hreyfivika í Grindavík: 21.-27. september 2015
Hreyfivika verður í Grindavík 21.-27. september næstkomandi. Þetta er annað árið í röð sem Grindavík tekur þátt en frumraunin í fyrra tókst mjög vel og hefur UMFÍ m.a. hvatt önnur sveitarfélög til að kynna sér ,,Grindavíkurleiðina" sem farin var í Hreyfivikunni. Kynning verður á Hreyfivikunni á sérstökum morgunverðarfundi á Geohotel þriðjudaginn 8. september n.k. Grindvíkingar eru hvattir til þess að taka þátt í Hreyfivikunni.
7. Hrund Skúladóttir: Umsókn í afrekssjóð
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
8. Halla Emilía Garðarsdóttir: Umsókn í afrekssjóð
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
9. Nökkvi Már Nökkvason: Umsókn í afrekssjóð (2)
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
10. Jón Axel Guðmundsson: Umsókn í afrekssjóð
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
11. Frístundir: Fléttaðar inn í skólatíma nemenda
Sviðsstjóri lagði fram minnisblað um samþættingu skóla- og frístundastarfs í Grindavík. Samkvæmt nýsamþykktri frístundaáætlun Grindavíkurbæjar segir í áherslum barna og unglinga: ”Samþætting og samvinna verði aukin í nærumhverfi til þess að skapa samfellu í skóla-, frístunda- og íþróttastarfi.“
Sviðstjóri leggur til að minnisblaðið verði einnig kynnt í fræðslunefnd og í kjölfarið muni þverfaglegt teymi í frístundamálum sem í sitja sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, frístundaleiðbeinandi, forstöðumaður Miðgarðs, yfirþroskaþjálfi og fulltrúar grunnskólans, kynna sér samþættingu skóla- og frístundastarfs hjá Ísafjarðarbæ og víðar, kosti þess og galla. Í teyminu verði einnig sviðstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og fulltrúar frá fleiri hagsmunaaðilum eins og UMFG, tónlistarskóla, foreldrafélögum, Skólaseli osfrv. Teymið leggi jafnframt fram verkefnisáætlun um samþættingu skóla- og frístundastarfs, fyrir næstu áramót, með tímalínu og grófri kostnaðaráætlun.
Nefndin samþykkir tillögu sviðsstjóra.12. Leikjanámskeið: 2015
Lögð fram skýrsla um starfsemi Leikjanámskeiðsins í sumar ásamt skoðanakönnun sem framkvæmd var á meðal foreldra. Samkvæmt henni ríkti almenn ánægja með námskeiðið og starfsfólkið og jafnframt komu fram ábendingar um hvernig mætti efla námskeiðið fyrir næsta sumar.
13. Forvarnarteymi/Þruman: Hjólakraftur 2015
Lokaskýrsla um Hjólakraft 2015 og tillögur um næstu skref
Lögð fram lokaskýrsla um verkefnið Hjólakraftur sem var hjólaklúbbur á vegum félagsmiðstöðvarinnar Þrumunnar í samstarfi við grunnskólann. Þorvaldur Daníelsson leiddi verkefnið af stakri prýði og nemendurnir tóku m.a. þátt í Bláa Lóns hjólaþrautinni og WOW Cyclothon hjólreiðakeppninni þar sem hjólað var í kringum Ísland í sumar. Forvarnarteymi Grindavíkurbæjar hefur hafið undirbúning að framhaldi Hjólakrafts í samstarfi við Þorvald.
14. Félagsmiðstöðin Þruman: Verkefnisáætlun 2015-2016
Verkefnisáætlun fyrir starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Þrumunnar veturinn 2015-2016 lögð fram.
15. Minja- og sögufélag Grindavíkur: Beiðni um umsögn
Sögu- og minjafélagið biður um umsögn samkvæmt beiðni lögreglu
Félagið óskar eftir umsögn nefndarinnar þess efnis að fá að varpa sögulegum grindvískum mannlífsljósmyndum frá húsnæði Veiðarfæraþjónustunnar ehf, Ægisgötu 3, Grindavík yfir á vegg Þróttar ehf, Ægisgötu 9. Samkvæmt erindinu eru húseigendur og lögreglan búnir að gefa leyfi fyrir sitt leiti.
Nefndin gerir ekki athugasemd við þennan menningarviðburð fyrir sitt leiti.16. Grindavíkurkirkja: Skýrsla um æskulýðsstarf haust 2014 og vor 2015
Skýrslan lögð fram.
17. Minja- og sögufélag Grindavíkur: Samstarfssamningur 2015-2018
Lögð fram drög að samstarfssamningi Grindavíkurbæjar og Minja- og sögufélags Grindavíkur. Einnig lögð fram breytingatillaga frá fulltrúa Minja- og sögufélagsins. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi með áorðnum breytingum.
18. Vinabærinn Piteå: Samstarfsverkefni
Yfirlit yfir samstarfsverkefni vinabæjanna Piteå og Svíþjóðar - 40 ára samstarfsafmæli í undirbúningi 2017
Lagt fram yfirlit samstarfsverkefna við vinabæinn Piteå, til næstu tveggja ára.
19. Vinnuskólinn: Skipulag 2015
Lögð fram skýrsla um starfsemi Vinnuskólans sumarið 2015 og skoðanakönnun á meðal foreldra/nemenda.
20. Forvarnarteymi: Fundargerðir
Fundargerðin lögð fram.
21. Fundargerðir Ungmennaráðs
Fundargerðin lögð fram.