Frístunda- og menningarnefnd - 52. fundur
- 06.04.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 52
- Ritari: Þorsteinn Gunnarsson
Nefndarmenn
- Atli Geir Júlíussonaðalmaður
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Þórunn Alda Gylfadóttiraðalmaður
- Ágústa Inga Sigurgeirsdóttiraðalmaður
- Anita Björk Sveinsdóttirvaramaður
- Þorsteinn Gunnarssonembættismaður
1. Íþróttamiðstöð: Ársskýrsla 2015
Var frestað á síðasta fundi
Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamiðstöðvar fór yfir ársskýrslu íþróttamiðstöðvarinnar frá síðasta ári og helstu verkefni ársins 2016.
2. Knattspyrnudeild UMFG: Ársskýrsla og ársreikningur 2015
Ársskýrslan lögð fram.
3. Knattspyrnufélagið GG: Beiðni um styrk
Nefndin tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu í bæjarráði.
4. Listasafn Grindavíkurbæjar: Skráning og umsýsla
Hafin er skráning á málverkum og listaverkum Grindavíkurbæjar á vegum bókasafnsins. Áætlað er að skráningu ljúki í haust.
5. Fjölþætt heilsuefling: leið að farsælli öldrun
Dr. Janus Guðlaugsson íþrótta- og heilsufræðingur hefur óskað eftir því við Grindavíkurbæ að taka þátt í verkefni sem felst í því að að koma á fótíhlutun í nokkrum sveitarfélögum á Íslandi sem snýr að fjölþættri heilsurækt fyrir eldri aldurshópa.
Málið er í vinnslu.6. Frístunda- og menningarsvið: Menningarvika 2016
Menningarvikan var haldin 12.-20. mars sl. Hún tókst mjög vel að þessu sinni. Talið er að á milli 4000 og 5000 manns hafi sótt viðburðina.
7. Bæjarlistamaður Grindavíkur 2016: Samningur
Undirritaður samningur lagður fram.
8. Sjóarinn síkáti: Verkefnisáætlun 2016
Undirbúningur fyrir Sjóarann síkáta hófst í janúar og er skipulagið langt komið. Hátíðin á 20 ára afmæli í ár og þá á Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur 60 ára afmæli og því verða hátíðahöldin með veglegasta móti í ár. Sem fyrr verður aðkoma Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar mikil. Undirbúningsfundur með helstu hagsmunaaðilum verður haldinn í næstu viku.
Breytingar verða gerðar á hátíðarsvæðinu en það verður allt fært niður fyrir Kvikuna. Tilgangurinn er að þjappa hátíðarsvæðinu saman. Farið yfir fyrstu drög að dagskrá.9. Vinnuskólinn: Starfsáætlun 2016
Sviðsstjóri fór yfir starfsáætlun Vinnuskóla Grindavíkur 2016. Vel hefur gengið að ráða flokksstjóra. Gerðar verða eftirfarandi breytingar á vinnutíma:
8. bekkur byrjar kl. 8 í stað 8.30 og er til 12. Vinnuvikan lengist um 2 klst.
9. bekkur byrjar kl. 8 í stað 8.30 og fær 30 mín. í hádegismat í stað 1 klst, vinnur til 15. Í staðinn vinnur hann ekki á föstudögum. Vinnuvikan lengist um 30 mín.
10. bekkur byrjar kl. 8 í stað 8.30 og fær 30 mín. í hádegismat í stað 1 klst, vinnur til 15. Vinnuvikan lengist um 4,5 klst.
11. bekkur byrjar kl. 8 í stað 8.30 og fær 30 mín. í hádegismat í stað 1 klst, vinnur til 15. Vinnuvikan lengist um 4,5 klst.
Codland vinnuskólinn verður starfræktur í sumar.10. Leikjanámskeið 2016: Verkefnisáætlun
Sviðsstjóri lagði fram starfsáætlun fyrir leikjanámskeið 2016. Gert er ráð fyrir talsverðum breytingum á skipulagi námskeiðsins til þess að vera innan fjárheimildar. Nefndin samþykkir tillöguna.
11. Forvarnarteymi: Forvarnarverkefni, DC námskeið
Nefndinni líst vel á verkefnið. Málið er í vinnslu.
12. Frístundaleiðbeinandi/Þruman: Mat
Þau gögn sem liggja fyrir lögð fram. Lokaskýrsla liggur fyrir á næsta fundi.
13. Samsuð: Fundargerðir
Fundargerðin lögð fram.
14. Forvarnarteymi: Fundargerðir
Fundargerðin lögð fram.
15. Fundargerðir Ungmennaráðs
Fundargerðin lögð fram.