Frístunda- og menningarnefnd - 37. fundur
- 03.12.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 37
- Ritari: Þorsteinn Gunnarsson
Nefndarmenn
- Atli Geir Júlíussonaðalmaður
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Lovísa H Larsenformaður
- Þorsteinn Gunnarssonembættismaður
- Gunnlaugur Jón Hreinssonáheyrnarfulltrúi UMFG
1. Samningur við UMFG og Kvenfélagið um umsýslu í nýju íþróttamannvirki
Nefndin leggur til að íþróttamiðstöðin sjái um umsýslu og þrif í félagsmiðstöð UMFG og Kvenfélagsins í nýrri íþróttamiðstöð til að byrja til að sjá hver reynslan verður.
2. Stefnumótunarvinna um íþróttamál í Grindavík
Stýrihópur frístunda- og menningarnefndar hefur lagt fram drög að stefnumótun um íþróttamál í Grindavík. Stefnumótunin byggir á gögnum frá opnum fundi sem haldinn var 8. apríl 2013. Jafnframt var horft til stefnumótunar UMFG, ÍTR og ÍBR, ÍSÍ og fleiri aðila við gerð stefnumótunarinnar. Leitast var eftir því að Grindavíkurbær, UMFG, GG og Hestamannafélagið Brimfaxi stæðu að henni í sameiningu. Í stýrihópnum sátu sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, formaður frístunda- og menningarnefndar, einn nefndarmaður að auki og formaður UMFG. Stefnumótunin hefur verið kynnt fyrir stjórnum UMFG, Brimfaxa og GG og er hún þar í umsagnarferli til 16. desember nk.
3. Íþróttamaður og íþróttakona ársins 2014
Kjörið fer fram í Hópsskóla á gamlársdag líkt og undanfarin ár. Verkefnisáætlun lögð fram. Sviðsstjóri kynnti nefndarmönnum reglugerðina um kjörið.
4. Íþróttamannvirki: Uppbygging tengibyggingar og íþróttasalar
Fundargerð nr. 1 lögð fram til kynningar.
5. Úttekt á frístundastarfi á vegum Grindavíkurbæjar
Í maí samþykkti nefndin að fara í stefnumótun um frístundastarf á vegum Grindavíkurbæjar. Stýrihópur sá um stefnumótunina en hann skipuðu Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, Stefanía Jónsdóttir frá Miðgarði, Petrína Baldursdóttir frá Grunnskóla Grindavíkur og Jóhann Árni Ólafsson frístundaleiðbeinandi. Markmið þessarar stefnumótunarskýrslu er tvíþætt. Annars vegar að greina stöðu frístundastarfs hjá Grindavíkurbæ. Hins vegar að koma með tillögur að stefnumótun og leiðir til að efla frístundastarf til næstu ára. Haldnir voru fjórir fundir í stýrihóp og þrír vinnufundir. Í fyrsta lagi með ungmennaráði og nemendaráði grunnskólans. Í öðru lagi með stjórn félags eldri borgara, presti og starfsfólki Miðgarðs. Í þriðja lagi með fötluðum og aðstandendum þeirra. Til grundvallar voru lögð gildi Grindavíkurbæjar. Þá var hlutverk Grindavíkurbæjar í frístundastarfi skilgreint, framtíðarsýn og lagðar fram sjö stefnumarkandi leiðir.
Nefndin samþykkir stefnumótunina og vísar henni til bæjarstjórnar. Jafnframt að hún verði kynnt vel í Járngerði, fréttabréfi Grindavíkurbæjar.6. Foreldrafærni
Sviðsstjóri fór yfir forvarnarverkefnið Foreldrafærni en unnið hefur verið að innleiðingu verkefnisins í haust og gerð verkefnishandbók. Foreldrafærni er verkefni í Grindavík sem hefur það að markmiði að bæta hegðun og samskipti barna og efla foreldra í hlutverki sínu. Gengið er út frá heildstæðri nálgun í þessu verkefni ásamt uppeldisáherslum skólanna og önnur þau verkfæri sem verið er að nota innan skólakerfisins vinni saman og þær aðferðir verði nýttar sem helst gagnast hverjum og einum nemanda og fjölskyldu hans. Lagt er upp með ákveðinn grunn sem felst í að bjóða foreldrum upp á námskeið um uppeldi barna á meðan börn eru á leikskólaaldri og í byrjun grunnskóla.
Nefndin fagnar þessu verkefni.7. Tendrun jólatrés 2014: Dagskrá
Kveikt verður á jólatrénu á Landsbankatúninu á laugardaginn kl. 18:00. Dagskrá og verkefnisáætlun lögð fram. Nefndin hvetur Grindvíkinga til þess að fjölmenna.
8. Friðargangan 2014
Hin árlega Friðarganga okkar Grindvíkinga verður föstudaginn 12. desember. Dagskrá og verkefnisáætlun lögð fram. Gangan hefst klukkan 09:00 og verður gengið frá öllum skólum bæjarins að Landsbankatúninu. Markmið göngunnar er að efla samkennd og samhug með því að að boða jákvæðni, gleði og kærleika í samfélaginu. Allir Grindvíkingar eru velkomnir að slást með í för.
9. Þrettándagleði 2015
Þrettándagleðin verður að vanda 6. janúar nk. Ýmsar hugmyndir um dagskrána ræddar. Verkefnisáætlun lögð fram.
10. Rannsókn og greining: Endurnýjun samnings 2015-2018
Grindavíkurbær hefur verið þátttakandi í þessum rannsóknum undanfarin ár og hafa þær gefið greinargróðar upplýsingar um hagi og líðan ungs fólks í Grindavík. Nefndin samþykktir að framlengja samninginn við Rannsókn og greiningu og hvetur til þess að markvisst verði unnið úr þessum niðurstöðum.
11. Fundargerðir forvarnarteymis Grindavíkur
Fundargerðin lögð fram.
12. Fundargerðir Ungmennaráðs
Fundargerðin lögð fram. Nefndin tekur undir bókun ungmennaráðs varðandi áheyrnarfulltrúa og leggur til við bæjarstjórn að ungmennaráð fái áheyrnarfulltrúa í frístunda- og menningarnefndina varðandi þau mál sem snúa að ungmennum.