Frístunda- og menningarnefnd - 69.. fundur
- 10.01.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 69.
- Ritari: Björg Erlingsdóttir
Nefndarmenn
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Þórunn Alda Gylfadóttirformaður
- Ágústa Inga Sigurgeirsdóttiraðalmaður
- Anita Björk Sveinsdóttiraðalmaður
- Björg Erlingsdóttirsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
- Sigríður Berta Grétarsdóttir
1. Menningarvika 2018: Frístunda- og menningarsvið
Undirbúningur er hafinn og dagskráin verður fjölbreytt.
2. Bæjarlistamaður Grindavíkur 2018: Tilnefningar
Farið verður yfir tilnefningar á næsta fundi og bæjarlistamaður tilnefndur.
3. Anna Eyjólfsdóttir: Þríeind 339
Fundur verður um miðjan janúar þar sem í ljós kemur hvernig gengur með að fjármagna verkefnið.
4. Íþróttahús 2018: þarfagreining vegna áhalda
Nefndin leggur til að hópur verði stofnaður til að vinna þarfagreining vegna áhaldakaupa í nýtt íþróttahús. Sviðsstjóra falið að stofna hóp með forstöðumanni íþróttamannvirkja, fulltrúum frá deildum UMFG og starfsmanni UMFG.
5. Þrettándagleði: 2018
Þrettándagleðin gekk vel.
6. Sjóarinn síkáti 2018: verkefnisáætlun
Íbúafundur verður haldinn um Sjóarann síkáta þriðjudaginn 16. janúar kl. 17:00 í Kvikunni. Óskað er eftir þátttöku og tillögum frá Grindvíkingum og öðrum velunnurum hátíðarinnar, þannig að góð hátíð geti orðið betri.
7. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2019-2021
Sviðsstjóri, Atli og Ágústa Inga verða fulltrúar nefndarinnar í þeirri vinnu sem framundan er.
8. Handverkssýning 2018: sýning á menningarviku
Opinn fundur verður haldinn með fulltrúa frá Handverk og Hönnun, Sunnevu Hafsteinsdóttur fimmtudaginn 18. janúar kl. 16 í Kvikunni.
9. Afrekssjóður: Marinó Axel helgason
Sótt um vegna vinnutaps vegna tveggja ferða með U21 landsliði í knattspyrnu
Tekið fyrir með afbrigðum. Styrkur veittur fyrir báðar ferðir.